154. löggjafarþing — 102. fundur,  24. apr. 2024.

skráð trúfélög o.fl.

903. mál
[16:19]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég kem hingað upp og verð að viðurkenna að ég er kannski svolítið á skjön við það mál sem verið er að ræða. Hv. þm. Bryndís Haraldsdóttir opnaði svolítið á það sem mig langar að ræða þegar hún kom inn á hinar ýmsu myndir sem þessi barátta okkar við hryðjuverkastarfsemi tekur, þá kannski áhrifin á litlu manneskjurnar sem eru nú kannski ekki líklegar til að bera stóra ábyrgð í þessu máli, hvað við höfum gengið langt með mjög íþyngjandi túlkun á ýmsu því sem lýtur að þessum lögum sem við settum til að undirgangast skyldur okkar á alþjóðavettvangi í baráttunni gegn hryðjuverkastarfsemi og öðru slíku. Ég heyri að þingmaðurinn er með dæmisögur og ég er með fjöldann allan af slíkum. Þetta er eiginlega verra en að vera eingöngu íþyngjandi, við erum bókstaflega komin í þá stöðu að vegna einhverra tengsla við aðila, t.d. við stjórnmálafólk, er fjölskyldumeðlimum og öðrum gert, til að geta haldið áfram að sinna daglegu lífi sínu, að skila einhverjum dúddum úti í bæ, leyfi ég mér að segja, skattskýrslum og launaseðlum. Það er náttúrlega algjörlega óboðlegt að við skulum búa svo um hnútana að þetta sé niðurstaðan. Ég held að við treystum okkur öll til að fullyrða að það er ekki þarna sem baráttan gegn hryðjuverkum vinnst. Mig langaði að heyra frá hv. þingmanni hvort hún hafi velt þessu eitthvað meira fyrir sér. Ég veit að nú er á launum hjá meiri hlutanum fyrrverandi þingmaður sem er að fara yfir svokallaða blýhúðun í innleiðingu reglugerða, er þetta mögulega þar undir? Af því litla sem ég hef náð að kynna mér málið þá er þetta túlkunin hjá okkur, við erum að ganga svo langt í túlkuninni. Ég hefði áhuga á að heyra í hv. þingmanni því að ég held að þarna sé mál sem við eigum öll að geta náð saman um að laga fyrir fólk.