154. löggjafarþing — 102. fundur,  24. apr. 2024.

skráð trúfélög o.fl.

903. mál
[16:21]
Horfa

Bryndís Haraldsdóttir (S) (andsvar):

Virðulegur forseti. Ég þakka hv. þingmanni andsvarið. Ég er sammála henni í þessu. Ég ber örugglega meiri ábyrgð en hæstv. dómsmálaráðherra sem er með þetta frumvarp núna því að ég sat í efnahags- og viðskiptanefnd þegar við tókum inn þetta FATF-regluverk allt saman. Ég hefði ekki getað ímyndað mér að það yrði útfært með þeim hætti sem hefur birst okkur. Eitt er það þó að móðir mín hringi brjáluð í mig og segi að það sé rosalega erfitt fyrir hana að kaupa nýjan bíl út af því að hún þurfi að fylla út fullt af eyðublöðum. Ég kvarta ekki sérstaklega yfir því en henni fannst það ankannalegt og mér finnst það reyndar líka út af því að ég er dóttir hennar og þingmaður. Ég hef skilning á því að með þessum alþjóðlegu reglum sé verið að koma í veg fyrir alls konar spillingu sem hefur fyrirfundist í heiminum og þar hafa þingmenn ekki verið undanskildir. Ég held þó að þetta snúi meira að útfærslu heldur en lagatextanum og þess vegna ákvað ég að koma hérna upp. Það gefur okkur í hv. allsherjar- og menntamálanefnd kannski tækifæri til að beina spurningum til sérfræðinga ráðuneytisins þegar þeir koma til okkar út af þessu máli og fara aðeins yfir það hvort hér sé ekki allt of langt gengið. Ég held að hér sé sérstaklega verið að vísa í bréf sem fjöldinn allur af fólki í samfélaginu fékk frá Creditinfo vegna þess að það hafði fjölskyldutengsl við þingmann. Kannski er það ásættanlegt, en annað er það að fólk hafi einhvern tíma verið með viðkomandi í stjórn einhvers félags, í sóknarnefnd eða einhverju. Þá finnst manni einhvers konar sturlun eiga sér stað. Ég er bara sammála hv. þingmanni og ég held að þetta gefi okkur tækifæri til að skoða það mál því að það er eitthvað skrýtið.