154. löggjafarþing — 102. fundur,  24. apr. 2024.

skráð trúfélög o.fl.

903. mál
[16:23]
Horfa

Hanna Katrín Friðriksson (V) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni fyrir svarið. Þetta er verulega gott að heyra. Nú geri ég kannski tilraun til að feta mig aðeins í átt að hinu raunverulegu efnisatriði þessarar umræðu sem er trúfélögin. Eitt af því sem hefur verið mikið kvartað undan er að þeir sem sitja í stjórnum almannaheillafélaga eru túlkaðir samkvæmt þessari nálgun sem raunverulegir eigendur vegna þess hver á almannaheillafélög. Þar með er virkilega verið að skerða möguleika fjölmargra á því að sitja sem sjálfboðaliðar í stjórnum slíkra félaga. Það er náttúrlega ekki bara bagalegt fyrir viðkomandi einstaklinga heldur fyrir þessi félög sem reiða sig á sjálfboðavinnu og að sannarlega sé ekki verið að setja fólki skorður með að sitja þar. Ég held því að það sé gríðarlega mikilvægt að við förum vel yfir þetta. Það má líka kalla til fleiri aðila. Mér finnst t.d. mjög sérstakt að það skuli ekki hafa heyrst — alla vega hef ég ekki heyrt það — bofs frá Persónuvernd þegar fólk sem rekur fyrirtæki úti í bæ, starf sem gerir að verkum að það er upplýsingaskylt samkvæmt þessum lögum, kallar eftir mjög skýrt persónuvernduðum upplýsingum frá fólki á borð við launaseðla, fólk sem hvergi hefur skrifað undir nokkur vottorð. Maður hefur enga tilfinningu fyrir því hvernig farið er með þessi gögn sem á að senda og undir liggur bara hótun um að viðskipti verði ekki látin ganga í gegn, að bankareikningum verði lokað eða um einhverjar hroðalegar afleiðingar. Þetta gengur ekki þannig að ég held að við þurfum öll að vera svolítið meðvituð. Ég er ánægð með að hæstv. ráðherra sitji hér og hennar fólk því að ég held að skilaboðin séu skýr. Við getum lagað þetta og við þurfum að gera það því þetta dregur líka úr vilja fólks til að láta tilganginn raunverulega skila sér. Það er hin raunveruleg hætta sem þessu fylgir.