skráð trúfélög o.fl.
Virðulegur forseti. Ég þakka aftur hv. þingmanni. Ég held að við séum mjög sammála í þessu máli. Kannski verður þessi umræða hér til að kveikja á einhverjum bjöllum þannig að hægt verði að bregðast við, hvort sem er í dómsmálaráðuneytinu eða fjármálaráðuneytinu sem þetta tengist auðvitað líka. Reglurnar sem við settum um almannaheillafélög held ég reyndar að séu mjög mikilvægar varðandi almannaheillaskrána. Nú gefum við skattafslátt af því þegar greitt er til almannaheillafélaga. Það er algerlega frábært og ýtir undir þessa mikilvægu starfsemi sem almannaheillafélög eru. En þá er algerlega óásættanlegt að á sama tíma séum við með eitthvert annað regluverk sem truflar fólk í því að gefa kost á sér í þessi mikilvægu störf. Ég veit ekki hvort við náum utan um það í vinnu við akkúrat þetta frumvarp en þetta kveikir vonandi á einhverjum spurningum eða ábendingum sem við getum beint til ráðuneytisins, eða þá kannski að við hv. þingmaður getum ráðist saman í frumvarp, skýrslubeiðni eða eitthvað til að taka á þessu því að mér heyrist við vera mjög sammála.