skráð trúfélög o.fl.
Forseti. Örstutt í viðbót, af því að það var verið að tala um gagnagrunninn sem ríkið skráir fólk í til að vita í hvaða trú- og lífsskoðunarfélagi það er. Það er hægt að útfæra það þannig að ríkið hafi ekki hugmynd um hver er skráður í hvaða trúfélag, t.d. með ákveðnum auðkennislykli — ekki lykli, við fáum oft auðkennistákn þegar við kaupum gjafakort eða eitthvað svoleiðis. Það gæti í raun verið ávísun um að trúfélag fái einmitt slíka greiðslu á hverju ári. Við gerum þá kröfu að fólk sé alltaf búið að skrá sig fyrir 1. desember, minnir mig, í trúfélag og þá er fólk í raun bara að úthluta til trúfélags þeim kóða sem það fær úthlutað. Þá þarf ekkert að skrá það hver á hvaða kóða heldur bara hvað eru gildir kóðar sem slíkir. Þegar trúfélag, sem heldur að sjálfsögðu utan um sína félagaskrá, sendir inn þá kóða sem það er með fær það bara greitt samkvæmt því. Þetta er ekkert flókið. Það er þá eini staðurinn þar sem það er vistað hver er í hvaða trúfélagi, hjá trúfélaginu eða lífsskoðunarfélaginu sjálfu. Það eina sem ríkið veit er hvað eru gildir trúfélags- og lífsskoðunarkóðar en ekki hver er á bak við hvaða kóða fyrir sig. Það er alveg hægt að útfæra þetta, redda þessu. Við förum kannski í það, það væri áhugavert.