154. löggjafarþing — 102. fundur,  24. apr. 2024.

rannsókn vegna snjóflóðs sem féll í Súðavík 16. janúar 1995.

1039. mál
[16:42]
Horfa

Frsm. stjórnsk.- og eftirln. (Þórunn Sveinbjarnardóttir) (Sf):

Frú forseti. Ég mæli fyrir tillögu til þingsályktunar um rannsókn vegna snjóflóðs sem féll á Súðavík 16. janúar 1995. Flytjendur þessarar tillögu eru fulltrúar í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis leggur til að Alþingi álykti í samræmi við lög um rannsóknarnefndir, frá árinu 2011, að skipa rannsóknarnefnd þriggja einstaklinga til að rannsaka málsatvik í tengslum við snjóflóð sem féll í Súðavík 16. janúar 1995. Rannsóknarnefndin dragi saman og útbúi til birtingar upplýsingar um málsatvik í því augnamiði að varpa ljósi á ákvarðanir og verklag stjórnvalda þar sem gerð verði grein fyrir:

1. hvernig staðið var að ákvörðunum um snjóflóðavarnir, hvernig skipulagi byggðar var háttað með tilliti til snjóflóðahættu, gerð hættumats og hvernig staðið var að upplýsingagjöf um snjóflóðahættu til íbúa Súðavíkur,

2. fyrirkomulagi og framkvæmd almannavarnaaðgerða í aðdraganda snjóflóðsins, í kjölfar þess og þar til hættuástandi var aflétt,

3. eftirfylgni stjórnvalda í kjölfar snjóflóðsins.

Rannsókninni ljúki svo fljótt sem verða má og eigi síðar en einu ári eftir skipun rannsóknarnefndarinnar.

Forsaga þessa máls er sú að 6. júní 2023 barst stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd bréf frá þáverandi forsætisráðherra. Í því kom fram að ráðherra hefði borist erindi frá lögmannsstofu fyrir hönd aðstandenda og eftirlifandi ættingja þeirra 14 einstaklinga sem létust í snjóflóðinu. Í erindinu var þess farið á leit að rannsókn færi fram á þætti hins opinbera í snjóflóðinu, til að mynda með skipan rannsóknarnefndar á grundvelli laga um slíkt. Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd tók málið til umfjöllunar, aflaði gagna og kallaði til sín gesti. Við undirbúning tillögunnar var jafnframt leitað umsagnar forseta Alþingis lögum samkvæmt og er brugðist við ábendingum hans um efni tillögunnar og greinargerð.

Að lokinni vandaðri yfirferð er það mat stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis að mikilvægt sé að fram fari hlutlæg og óháð rannsókn á þeim atburðum sem hér eru til umfjöllunar. Ljóst er, eins og rakið er í ítarlegu máli í greinargerð tillögunnar, að ekki fór fram óhlutdræg rannsókn í kjölfar þeirra sviplegu atburða sem áttu sér stað í Súðavík 16. janúar 1995. Það hefur skapað tortryggni og vantraust gagnvart stjórnvöldum sem er mikilvægt að eyða. Taka þarf til rannsóknar málsatvik svo að leiða megi í ljós hvernig staðið var að ákvörðunum og verklagi stjórnvalda í tengslum við snjóflóðið. Á grundvelli slíkrar athugunar geta Alþingi og stjórnvöld eftir atvikum metið hvort dreginn hafi verið lærdómur af atburðunum og hvort úrbóta sé þörf. Slík athugun hefur einnig það hlutverk að svara ákalli um óhlutdræga rannsókn á málsatvikum sem hefur verið uppi frá því að hinir voveiflegu atburðir urðu. Nefndin vill taka fram að við umfjöllun hennar um málið hefur hún ekki orðið þess áskynja að neitt saknæmt hafi átt sér stað.

Snjóflóðið 16. janúar 1995 var reiðarslag fyrir samfélagið í Súðavík og hefur haft djúpstæð áhrif á eftirlifendur og aðstandendur þeirra sem létust auk þess sem atburðurinn hefur markað djúp spor í sögu þjóðarinnar. Hópur eftirlifenda og aðstandenda þeirra sem létust í snjóflóðinu hefur frá upphafi leitað eftir því að málið verði tekið til óháðrar rannsóknar. Tilraunir þeirra hafa ekki borið tilætlaðan árangur. Segja má að raddir sem vildu að málið skyldi rannsakað hafi ekki þagnað á þeim hartnær þremur áratugum sem liðnir eru frá náttúruhamförunum.

Mig langar, frú forseti, að vísa í ítarlega greinargerð tillögunnar sem liggur fyrir í þingskjalinu um ýmislegt sem ég hygg að hv. þingmenn þurfi að kynna sér í þessu máli. Ég vísa þar með til greinargerðarinnar, í umfjöllun hennar um málsatvik í aðdraganda snjóflóðsins og einnig um framkvæmd almannavarnaaðgerða, en ég hyggst hins vegar næst taka fyrir þann þátt í greinargerð tillögunnar sem víkur að tilefni og grundvelli fyrir skipun rannsóknarnefndar Alþingis.

Verkefni stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar var að leggja mat á tilefni og grundvöll þessarar rannsóknar eða þess að setja á fót rannsóknarnefnd Alþingis. Með því er átt við að taka til skoðunar hvort um mikilvægt mál sé að ræða sem almenning varðar, sbr. 1. mgr. 1. gr. laganna, en slík mál þurfa almennt að varða starfsemi ríkisins. Sú rannsókn sem hér er lögð til snýr að því að varpa ljósi á ákvarðanir og verklag stjórnvalda í tengslum við snjóflóðið sem féll í Súðavík. Skipun rannsóknarnefndar er sérstakt úrræði sem almennt ber ekki að grípa til nema í vissum tilvikum. Í frumvarpi því sem varð að lögum um rannsóknarnefndir og framhaldsnefndaráliti allsherjarnefndar Alþingis um málið er að finna leiðbeinandi sjónarmið um hvenær rétt sé að skipa rannsóknarnefnd. Má þar nefna sjónarmið um að mál hafi almennt mikilvægi, þ.e. að það hafi tiltekið vægi sem kunni að birtast í því að það hafi verið lengi í opinberri umræðu án þess að öldur hafi lægt. Nefndin telur einnig að vægi málsins geti birst í því að það hafi haft mikil áhrif hér á landi án þess að hafa verið til lykta leitt. Þá getur það einnig verið grundvöllur til að setja á fót rannsóknarnefnd ef uppi er krafa um sjálfstæði og óhlutdrægni gagnvart ríkisstjórn eða öðrum stjórnvöldum. Eins og fram kemur fór ekki fram hlutlæg og óháð rannsókn í kjölfar flóðsins í Súðavík. Þær rannsóknir sem fóru fram voru í höndum Almannavarna ríkisins sem ekki gat talist hlutlaus aðili. Lengi hefur verið kallað eftir að slík rannsókn fari fram og er það ákall enn til staðar. Að mati nefndarinnar er því hér um að ræða mikilvægt mál sem varðar almenning.

Um umfang rannsóknar og afmörkun vísa ég í tillögugrein sem liggur fyrir í þingskjali. Í greinargerð þessarar tillögu er einnig fjallað um önnur úrræði sem kynni að hafa verið möguleiki að grípa til og ég vísa einnig í þá umfjöllun í greinargerð tillögunnar.

Í ljósi þeirrar umfjöllunar, sem er nokkuð ítarleg í greinargerð tillögunnar, er það skoðun stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar að rök hnígi til þess að fela þremur einstaklingum rannsókn þessa máls. Það er mikilvægt að nefndarmenn hafi nauðsynlega sérþekkingu til að leggja mat á atriði sem varða almannavarnir, snjóflóðavarnir og skipulag byggðar, hættumat og stjórnsýslu. Rannsóknarnefndinni verði falið að draga saman og útbúa til birtingar upplýsingar um málsatvik samkvæmt ályktunum þar að lútandi sem tilefni þykir til að setja fram. Nefndin gerir ráð fyrir að formaður slíkrar rannsóknarnefndar starfi í fullu starfi en aðrir nefndarmenn í hlutastarfi. Er þá horft til þess að nokkur fjöldi gagna og upplýsinga liggur fyrir sem varpað getur ljósi á málavexti. Þá má ætla að það verði einfaldara og fyrirhafnarminna að kalla til viðeigandi sérfróða nefndarmenn í hlutastarf fremur en fullt starf, t.d. með hliðsjón af því almannavarnaástandi sem ríkt hefur um nokkurra missera skeið hér á landi.

Í greinargerðinni er einnig fjallað um áætlaðan kostnað og ég hvet hv. þingmenn til að kynna sér upplýsingarnar sem þar liggja fyrir. Mig langar, í tilefni af framsögu um þetta mikilvæga mál og þessa tillögu um skipan rannsóknarnefndar Alþingis vegna náttúruhamfaranna í Súðavík 16. janúar 1995, að taka það fram, forseti, að hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd, fulltrúar í henni, var frá upphafi við umfjöllun þessa máls mjög meðvituð um bæði mikilvægi þess en einnig um það að hér er ekki mál á ferðinni sem rekur á fjörur okkar alla daga og eiginlega fráleitt svo. Ég leyfi mér að segja að vel hafi verið unnið í nefndinni og af mikilli tillitssemi við þá atburði sem hér um ræðir. Mig langar til að þakka hv. þingmönnum í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd fyrir starfið í nefndinni. Það var ekki einfalt og það var langt frá því að vera sjálfsagt að við kæmumst að sameiginlegri niðurstöðu. En eftir vandaða umfjöllun, sem tók auðvitað sinn tíma, enda var það eðlilegt miðað við mikilvægi og eðli málsins, varð niðurstaðan að flytja tillögu um að stofna rannsóknarnefnd Alþingis og gera það með þeim hætti sem lýst er í þessari þingsályktunartillögu og í hinni ítarlegu greinargerð sem henni fylgir. Við fengum m.a. á okkar fund þá aðstandendur sem farið hafa fyrir hópi aðstandenda frá Súðavík. Það er fólkið sem ritaði forsætisráðherra bréfið sem minnst er á í upphafi þessarar greinargerðar og varð til þess að stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd tók þetta mál til umfjöllunar.

Ég vona að þessi tillaga verði afgreidd og samþykkt hér á hinu háa Alþingi og að ákallinu um óhlutdræga rannsókn verði svarað þó að seint sé. Ég vona að sú vinna verði til þess að hægt sé að loka þessum erfiða og sorglega kafla í sögu Íslands.