rannsókn vegna snjóflóðs sem féll í Súðavík 16. janúar 1995.
Virðulegur forseti. Við erum hér að ræða tillögu um rannsókn á þeim skelfilegu atburðum sem áttu sér stað í Súðavík 16. janúar 1995. Ég veit að ég tala fyrir hönd allra Íslendinga sem muna eftir þeim degi að hann mun seint eða aldrei líða þeim úr minni. Það er því auðvitað stórt í öllu samhengi hlutanna að leggja þetta til og sýnir sig kannski í því að nefndin var samstiga í niðurstöðu sinni um málið, þó að það hafi ekki verið auðvelt verk eins og hv. formaður nefndarinnar, Þórunn Sveinbjarnardóttir, fór yfir. En ég tek undir með henni sem og hv. þm. Þórhildi Sunnu Ævarsdóttur að sú vinna var góð og ærleg og þar voru allir sammála um að vilja vanda til verka í viðkvæmu en mikilvægu máli. Ég geri orð þeirra beggja að mínum. Ég tek undir það sem hér hefur komið fram, bæði um störf nefndarinnar og hvað áhersla var lögð á. Mig langaði kannski að fá að bæta við, herra forseti, þar sem það skiptir mig máli, að það er mjög skiljanlegt að þrátt fyrir að lög um rannsóknarnefndir séu skýr um það að þeim eigi ekki að fylgja einhver hughrif um að líklegt sé að eitthvað saknæmt eða eitthvað slíkt hafi átt sér stað er það samt kannski mannlegt að í hugum margra sé það þannig að ef talin er ástæða til að setja á laggirnar rannsóknarnefnd sé það vegna þess að líklegt sé að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað. Mig langar því bara að fá að nefna hér, svo að það sé algerlega skýrt, að nefndin er sammála um það eins og kemur fram framarlega í greinargerð með tillögunni að við umfjöllun málsins hafi nefndin ekki orðið þess áskynja að neitt saknæmt hafi átt sér stað.
Þetta finnst mér skipta máli þegar við erum að rifja upp þennan gamla sorglega atburð með þessum hætti og gera það sem ég tel rétt þar sem engin óhlutdræg rannsókn átti sér stað á sínum tíma, sem er það verklag sem myndi alltaf eiga sér stað í dag, og ákall eftir rannsókn hefur verið nær linnulaust frá aðstandendum síðan þá. Ég vona að þetta verði eðlilegur punktur til að setja aftan við þennan skelfilega atburð og tel það því rétta ákvörðun að setja þessa rannsóknarnefnd á laggirnar. En í ljósi alls samhengis hlutanna, hversu margir eiga um sárt að binda og hversu erfitt verður fyrir marga að rifja þetta upp, sem mun óhjákvæmilega gerast með fréttaflutningi af þessari tillögu og afdrifum hennar og svo vinnu nefndarinnar sem verður að öllum líkindum sett á laggirnar og niðurstöðum hennar, þá vil ég segja einu sinni enn, forseti, að með því að leggja til að þessi rannsóknarnefnd skoði þessa skelfilegu atburði er nefndin ekki þar með að segja að í skoðun sinni hafi hún orðið þess áskynja að eitthvað saknæmt hafi átt sér stað heldur er rétt að eftir allan þennan tíma verði þetta rannsakað, því það var ekki gert. En ég ætla að leyfa mér að segja það einu sinni enn, eins og segir í greinargerðinni, með leyfi forseta:
„Nefndin vill taka fram að við umfjöllun málsins hefur hún ekki orðið þess áskynja að neitt saknæmt hafi átt sér stað.“
Þetta held ég að skipti máli þegar við ræðum svo viðkvæman hlut. En ég tel það gott að nefndin hafi komist að þeirri niðurstöðu að rétt væri að rannsaka þetta mál og vonandi setja punkt við þennan erfiða atburð í íslenskri sögu.