154. löggjafarþing — 102. fundur,  24. apr. 2024.

rannsókn vegna snjóflóðs sem féll í Súðavík 16. janúar 1995.

1039. mál
[17:06]
Horfa

Ágúst Bjarni Garðarsson (F):

Virðulegur forseti. Ég ætla örstutt að fá að koma inn í þessa umræðu sem nefndarmaður í hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Hafandi tekið þátt í hluta af þessari vinnu vil ég taka undir með þeim sem hér hafa talað á undan mér og þakka fyrir alla þessa vinnu og ég vil líka þakka formanni nefndarinnar, hv. þm. Þórunni Sveinbjarnardóttur, sem fór mjög vel með þetta. Það er, eins og hefur komið fram, auðvitað risastórt að fara í rannsókn á atburði sem átti sér stað hér fyrir mörgum árum, eða þann 16. janúar 1995, og hefur skilið eftir ör í samfélaginu okkar sem hefur aldrei fengið að gróa. Ég held að þetta sé kannski einn liður í því að svo verði á einhverjum tíma, ég bind auðvitað vonir við það.

Ég vil jafnframt taka undir það sem hv. þm. Hildur Sverrisdóttir nefndi hér. Það er alveg rétt að í vinnu nefndarinnar og við umfjöllun málsins hefur nefndin ekki orðið þess áskynja að neitt saknæmt hafi átt sér stað og einhvern veginn lít ég þannig á málið. Ég geri mér fullkomlega grein fyrir því að fjöldinn allur hér úti í samfélaginu hefur átt um sárt að binda, og á um sárt að binda, eftir þá sviplegu atburði sem áttu sér stað á þessum tíma. En ég vil líka segja að við búum einfaldlega á þessu landi innan um fjöll og firnindi, við búum á eldfjallasvæði þar sem náttúruhamfarir eiga sér stað. Ég held því að það sé mikilvægt á hverjum tíma — ég veit ekki hvort það er sanngjarnt að segja það, en ég ætla samt að segja það — að við lærum af reynslunni og lítum kannski um öxl, metum það sem hefur átt sér stað og hvað hægt sé að gera til þess að reyna af öllum mætti að koma í veg fyrir að slíkir atburðir endurtaki sig eða valdi jafn miklu tjóni og mannskaða og sá atburður sem við ræðum hér. Auðvitað er aldrei hægt að útiloka slíkt en það er samt sem áður hægt að minnka líkurnar á því.

Ég held að þessi vinna, sem vonandi mun verða samþykkt, virðulegi forseti, og sú vinna sem mun eiga sér stað í kjölfarið sé liður í því að tryggja að svo verði. Enn og aftur vil ég einfaldlega segja að ég styð þetta mál heils hugar.