staðfesting ríkisreiknings 2022.
Forseti. Þetta er nú mest spennandi mál ársins hverju sinni, staðfesting ríkisreiknings, eitthvað sem er löngu búið að gera. Það er búið að borga allar fjárheimildir og alle grejen og þetta er svona afgreiðsla á því sem þegar hefur verið gert en samt mikilvægt af því þetta er staðfesting endurskoðanda á ríkisreikningi, að ríkisreikningur gefi glögga mynd af stöðu ríkissjóðs. Það verður að segjast sem er að þessi ríkisreikningur gerir það ekki. Þar á bak við eru nokkur atriði sem ég held að Alþingi þurfi nauðsynlega að taka til skoðunar og fjárlaganefnd þarf að gera betur með.
Til að byrja með þá er það endurskoðunarskýrsla ríkisendurskoðanda sem vekur athygli á fjölmörgum atriðum, vísar m.a. í einmitt fyrri umfjöllun um það hvernig hefur ekki verið farið eftir lögum um opinber fjármál í fyrri endurskoðunarskýrslum sínum. En á sama tíma í þessari endurskoðunarskýrslu Ríkisendurskoðunar þá vantar líka tilfinnanlega rökstuðninginn fyrir öllum ábendingunum. Það er erfitt að lesa í gegnum endurskoðunarskýrslu ríkisendurskoðanda þar sem hann telur upp ansi marga galla hvað fjárlög og ríkisreikning varðar ásamt því í rauninni að telja ekki upp fjölmörg atriði sem eru líka ekki beint samkvæmt lögum um opinber fjármál eða í rauninni þvert gegn lögum um opinber fjármál, þ.e. það vantar ábendingar um ákveðin atriði þar sem er ekki farið eftir þeim lögum.
En þegar rökstuðninginn vantar fyrir þeim ábendingum Ríkisendurskoðunar er mjög erfitt að rýna alvarleika þeirra ábendinga því að eftir ábendingum sem ég hef fengið frá hinum og þessum endurskoðendum — þar sem ég er ekki viss um að það sé neinn endurskoðandi á þingi þá þurfum við að treysta á í rauninni sérfræðiþekkingu endurskoðenda úti í bæ, þetta snýst um umsagnir til þingsins, og kannski eru endurskoðendur ekki alveg nægilega duglegir við að senda formlegar umsagnir, enda kannski hreyfa þeir sig ekki mikið nema fá vel greitt fyrir, stéttin er kannski dálítið þannig. Hún glímir við þennan peningavanda. Þetta er nákvæmnisverk og þetta er rosalega mikið ábyrgðarverk að rita undir ársreikning eða ríkisreikning og því er kannski eðlilegt einmitt að nýta tímann vel og ekki kannski það mikill áhugi í stéttinni til þess að rýna ríkisreikning ofan í Ríkisendurskoðun því það á að vera einn helsti endurskoðandi landsins.
En ríkisendurskoðandi sjálfur er ekki endurskoðandi heldur er hann einungis með löggilta endurskoðendur í vinnu hjá sér. Það gerir hlutina kannski pínulítið flóknari af því að áður hafa ríkisendurskoðendur iðulega verið löggiltir endurskoðendur, þannig að það er smá svona tilfærsla á ábyrgð þarna þar sem ríkisendurskoðandi er að kvitta upp á ákveðin tæknileg atriði sem starfsmenn hans sjá um og hann sjálfur hefur ekki nauðsynlega faglega þekkingu á. En það getur alveg virkað þannig, við þurfum bara að átta okkur á því að staðan er þannig. En sem sagt, rökstuðningi ríkisendurskoðanda er, eins og ég segi, ábótavant sem gerir það að verkum að ítrekuðum ábendingum í gegnum árin er kannski erfitt að bregðast við af því að við erum að glíma við þessa blessuðu staðla, alþjóðlegu staðla, GFS- og IPSAS-staðla o.s.frv., og þegar verið er að fullyrða að eitthvað sem Fjársýslan eða ráðuneytið útfærir í fjárlögum — ríkisendurskoðandi segir að það sé rangt gert og þegar ráðuneytið eða Fjársýslan spyr hvernig þetta sé rangt gert þá vantar einmitt rökstuðninginn. Hann er ekki til staðar. Hann er ekki settur á blað fyrir fjárlaganefnd í rauninni til að segja af eða á þegar báðir aðilar eru búnir að útskýra mál sitt.
Ríkisendurskoðun er kannski ekki að útskýra nægilega vel fyrir stjórnsýslunni bara: Þetta passar ekki, búið, þið verðið að glíma við að leysa úr þessu. Ég bara verð að segja að ég er ekki sáttur við að þetta sé gert svona eða að það sé skortur á nákvæmni hvað þetta varðar. Ég myndi líka vilja geta sökkt mér aðeins ofan í tæknilegu atriðin í einstaka ábendingum til að reyna að skilja af hverju ábendingarnar eru mikilvægar. Það er verið að tala um alls konar birgðastöður og hvernig þær eru bókfærðar fram og til baka, ekki svona heldur hinsegin. Það er bara ekkert rosalega einfalt að átta sig á því af hverju það er mikilvægt að skráningin sé ekki eins og hún er gerð, af því að það er gerð ábending við það, heldur en af hverju hún ætti að vera á annan hátt og hvernig það gerir það að verkum að núverandi skráning en ekki hin skráningin, eins og sagt er að hún eigi að vera, gefi þá glögga mynd af stöðu ríkissjóðs eða ekki. Nákvæmlega það atriði breytir kannski engu í heildarmynd ríkissjóðs en það eru þó vissulega ákveðnar milljónir þarna á bak við. Í stærra samhengi þá eru það skráningar á því hvernig við meðhöndlum lífeyrissjóðsskuldbindingar, fram til næstu áratuga jafnvel, sem skiptir máli hvernig eru meðhöndlaðar upp á framtíðarfjárútlát fyrir ríkissjóð, hvort það sé augljóst út frá stöðu ríkisreiknings hvernig áhættan er til framtíðar, hvort skráningin í ríkisreikningnum gefi nægilega glögga mynd af því hver áhættan sé til næstu ára sem dæmi.
Það þegar við erum að glíma við vaxtagjöld ríkisins, ríkisábyrgðir, eignasafnið, viðhaldskostnað og ég veit ekki hvað og hvað þarna annað, sem er skráð með alls konar svona krúsidúllum bókhaldslega séð — við sem erum ekki bókhaldarar eða endurskoðendur verðum einhvern veginn að ná að átta okkur á því samt að staða ríkissjóðs standi á góðum grunni því að við erum að taka ákvarðanir hérna í rauninni bara næstum því dags daglega um það hvernig í rauninni fjárhagsstaða og efnahagsþróun verður á næstu árum. Það kemur að grunni til til þeirra ábendinga sem ég hef iðulega verið með um það hvernig við erum mjög léleg í því að gera mat á áhrifum lagafrumvarpa sem koma hingað fyrir þingið. Það er iðulega sagt bara: Hefur engin áhrif, rúmast innan ramma eða eitthvað því um líkt, þegar kostnaðurinn er síðan jafnvel stórfenglegur. Það var svo með málefni fatlaðra sem voru samþykktar lagabreytingar á árið 2018 þar sem var verið að ná mikilvægum réttindabreytingum í gegn. Það var áætlaður um milljarðs kostnaður en það er núna að enda í 10 eða 15 milljarða kostnaði, ekki fyrir ríkissjóð heldur jafnvel sveitarfélög. Maður myndi segja að staða ríkisreiknings þá, 2019, 2020, hafi ekkert endilega gefið neitt rosalega glögga mynd af því hvernig þessi útgjöld myndu þróast. Kannski er það ekki alveg hlutverk ríkisreiknings akkúrat þá en það er samhengið sem við þurfum oft, þ.e. að við vitum hvaða áhrif þau lög sem við samþykkjum koma til með að hafa til næstu ára.
Þessi punktstaða sem er sett í ríkisreikning hvert sinn, það er ákveðið samhengi þarna á milli, frá ríkisreikningi í fyrra og svo næsta árs o.s.frv. Þá þurfum við að geta rakið okkur leið og séð hver þróunin er af því að hún á ekkert að vera neitt breytileg innan árs. Þarna á hún að gefa góða sýn á það hver staðan er og það á að vera heiðarlegt. Ég er ekki alveg viss um að ég geti kvittað upp á það einmitt í þessu tilviki hvað þennan ríkisreikning varðar, bæði út af því að ábendingar ríkisendurskoðanda eru fjölmargar en á sama tíma eru þær ekki vel rökstuddar og gagnrýnin sem hefur komið á að það vanti betri rökstuðning skiptir máli einmitt upp á það hvort við skiljum það hvort ábendingarnar séu í raun og veru mikilvægar til að við áttum okkur á raunverulegri stöðu ríkissjóðs eða ekki. Það er bara mjög erfitt.
Þrátt fyrir það þá finnst mér augljóst, miðað við stöðuna eins og hún er og miðað við það hvernig er ekki tekið tillit til ýmissa atriða varðandi einmitt mat á áhrifum frumvarpa, varðandi mjög mörg mál sem ég hef verið að glíma við, t.d. í fangelsismálum eða landhelgisgæslumálum og þess háttar, hvernig það er í rauninni ákveðin vanfjármögnun á þeim réttindum og þeim lagalegu skyldum sem ríkið ber ábyrgð á. Þá gefur ríkisreikningur ekki nákvæmlega góða og glögga mynd af stöðu þeirrar opinberu þjónustu sem við öll eigum að búast við miðað við þau lög sem hafa verið samþykkt. Það er kannski ekki alveg hlutverk ríkisreiknings sem slíks en mér finnst það vanta í rauninni í ríkisreikning eða ársskýrslur ráðherra, ef fólk vill setja það þar frekar, einhvers staðar finnst mér það eiga að vera. Það þarf að segja heiðarlega frá hvað varðar stöðu lögbundinnar þjónustu og réttinda fólks.
Þegar við tökum ákvörðun hér inni í þessum þingsal um fjármögnun á heilbrigðiskerfinu eða menntakerfinu gerum við á sama tíma ákveðnar kröfur til þess að fólk fái slíka þjónustu. Þegar við komumst síðan að því eftir því sem líður á árið að það var ekki nægilega mikið fjármagn þá verðum við fyrir vonbrigðum. Okkur var lofað að fjármagnið myndi duga. Við greiddum atkvæði með því. Svo raungerðist það ekki, fullt af mínus, halli í rekstri heilbrigðisstofnana og þess háttar. Þá spyr maður sig: Bíddu, var verið að ljúga að mér eða var þetta svo ónákvæm áætlanagerð að það voru bara heiðarleg mistök? Þegar það gerist aftur og aftur hins vegar þá fer maður að efast um að þetta geti verið heiðarleg mistök.
Það er einfaldlega búið að plata mann of oft til að maður geti sætt sig við þá útskýringu. Það er einhvern veginn reynsla — alla vega þangað sem ég er kominn, og þess vegna get ég sagt bara mjög augljóslega að ríkisreikningur er ekki að gefa glögga mynd af stöðu ríkissjóðs út af einmitt þessari þjónustuskuld. Það hefur verið talað um innviðaskuld, þjónustuskuld líka, bætti því við í tengslum við innviðaskuldina, hún er hvergi í ríkisreikningi, þessi uppsafnaði viðhaldskostnaður. Ætti hann að vera þar samkvæmt stöðlum? Ég bara hef ekki tæknilega þekkingu á því og það væri kannski áhugavert að reyna að grafa eitthvað eftir því. En eins og ég segi þá vantar rökstuðninginn sem gerir það að verkum að við getum fengið faglegar ábendingar um það hvað sé rétt og hvað ekki. Það er mjög auðvelt að segja að þetta sé rangt og láta þar við sitja, og sá sem fær þá ásökun um að viðkomandi sé að gera eitthvað rangt, hvernig getur hann svarað fyrir sig þegar það er ekki útskýrt af hverju er verið að haga sér eða gera þennan ranga hlut? Á hann að segja: Nei, ég er að gera allt rétt. Ert þú að gera allt rétt? Ég veit það ekki, af hverju ert þú að segja að ég sé að gera þetta rangt? Þetta er tilgangslaust samtal. Það er ekkert efnislegt í þessu samtali sem getur gert það að verkum að við náum einhverri niðurstöðu. Það er svona kvörtunin mín hvað ríkisreikning og staðfestingu ríkisreiknings varðar núna og hefur verið undanfarin ár en sérstaklega núna.