154. löggjafarþing — 102. fundur,  24. apr. 2024.

veitingastaðir, gististaðir og skemmtanahald.

690. mál
[19:08]
Horfa

Dagbjört Hákonardóttir (Sf):

Frú forseti. Hvað veldur því að við förum þessa leið til að jafna leikinn á markaði? Þegar við heyrum hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra segja í aðdraganda kynningar á umfangsmiklum aðgerðum, sem eiga að lúta að því að koma Grindavík til hjálpar, jafna leikinn á markaði, bæta fyrir nokkuð slæleg vinnubrögð sem höfð voru í frammi í aðdraganda setningar reglugerðar árið 2018, sem var eiginlega frekar óskiljanleg — hvað veldur því að við förum þessa leið? Hvers vegna göngum við út frá því að það sé ekki vilji til þess og ekki þess virði að taka slaginn í þágu eðlilegrar og réttlátrar samkeppni á íslenskum gistimarkaði?

Við erum auðvitað á þessum stað vegna þess að í Reykjavíkurborg, sem er stærsti þéttbýlisstaður Íslands, förum við ekki varhluta af því að sumir hlutar borgarinnar eru ansi þéttsetnir af íbúðum sem enginn býr í. Aðstaðan í miðborginni og aðstaðan á öðrum svæðum landsins er ólík. Það er ekki fókusinn minn hér í dag að tala um mikilvægi þess að önnur skilyrði gildi fyrir smærri staði þar sem mögulega er ekki markaður fyrir því að reka hótel, heldur að það sé bara mjög mikilvægt að koma því á framfæri. Fókusinn minn hér í dag er fyrst og fremst sá að ég tel ástæðu til þess að standa vörð um sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga, sem er stjórnarskrárvarinn, sem er mikilvægur grundvöllur þess að sveitarfélögin ráði sínum ráðum sjálf og að þeim sé fært að taka ákvarðanir í þágu þeirra hagsmuna og þeirra aðstæðna sem gilda á markaði innan þeirra marka. Þar reiða sveitarfélög sig oftar en ekki á löggjafann vegna þess að hann setur ákveðnar leikreglur og til þess erum við hér komin í dag.

Ég sé að hv. atvinnuveganefnd hefur tekið þetta mál til meðferðar og hlýtt á umsagnir frá hagsmunaaðilum. Það er ástæða til að grípa ýmsar athugasemdir á lofti sem hafa borist frá hagsmunaaðilum. Mér finnst ástæða til að greina frá því sem fram kom frá Félagi fyrirtækja í hótel- og gistirekstri, félagi sem ég hef reyndar átt fund með í átaki okkar Samfylkingarfólks í þágu atvinnu og samgangna, þar sem við höfum heimsótt hundruð fyrirtækja um land allt og rætt m.a. þessi mál. Þau benda réttilega á að heimagisting sé að mestu leyti undanþegin gistináttaskatti. Hún sætir litlum sem engum eftirlitskröfum, ólíkt rekstrarleyfisskyldum gististöðum. Það er ástæða til að taka undir með þeim að rekstrarleyfisskyld gististarfsemi sé að mörgu leyti mun arðsamari fyrir þjóðarbúið en heimagisting þegar á heildina er litið. Heimagisting skapar ekki afleidd störf með sama hætti og rekstrarleyfisskyld starfsemi. Við sáum það t.d. í Covid að þeir aðilar sem gátu reitt sig á lokunarstyrki frá hinu opinbera komu rekstrarleyfisskyldu starfseminni — en það var ekki sama ásökunin frá þeim sem stóðu að heimagistingu. Það eru ákveðin teikn á lofti um að ekki hafi allt verið með felldu í þeirri starfsemi án þess að ég vilji vera með einhverjar fullyrðingar.

Það eru hvatar til þess að stýra markaðnum betur inn í rekstrarleyfisskyldu gististarfsemina. Þá hvata eigum við að búa til. Það eru ýmsir aðilar sem hafa búið þessi stýritæki til: New York, Barcelona, Amsterdam, París, Berlín, Mílanó, London. Allt eru þetta borgir sem hafa tekið nokkuð afdráttarlaus skref í þágu breyttra samkeppnisskilyrða á gistiþjónustumarkaði. Ég er ekki að mæla með því að teknar verði upp sambærilegar reglur, ég vil hafa það alveg kýrskýrt að ég er ekki að tala fyrir því að heimagistingu sé bara lokað, að fólk sem nýtir eignina sína til að leigja hana út þegar það fer í einhverjar vikur í ferðalag á eigin vegum, fólk sem nýtir sér deilihagkerfið með þeim hætti sem þekkist víða um bæ — það er alls ekki það sem við erum að ræða í dag, bara alls ekki. Við erum að tala um það að hér hafa stórir aðilar á markaði keypt upp íbúðir, margar hverjar á mjög góðum, fjölskylduvænum stöðum, sem eru vel byggðar, vel úr garði gerðar, sem eru kannski allar í sama húsinu, sem eru kannski allar í húsi þar sem ungbarnaleikskóli er á neðstu hæðinni, þar sem nú lítur út fyrir að aldrei muni búa lítil börn til lengri tíma. Ég ræddi við konu, hún hringdi í mig um daginn, sem býr í því húsi sem ég er að tala um. Hún á enga nágranna. Hún þarf að kljást við það að ruslinu er bara hent einhvern veginn í tunnurnar í sameigninni vegna þess að þar er aldrei neinn sem hægt er að tala við. Þetta er auðvitað slæmt. Við getum breytt þessu, svo að ég segi það bara aftur. Og ég mun segja það aftur á eftir.

En ég tek líka fram að hér erum við að ræða um borgir sem breyta reglum. Við getum líka talað um ríki sem hafa ákveðið að breyta reglum um þetta, ef við viljum fara ofar í stjórnkerfið. Við getum talað um Portúgal, Noreg, Ítalíu, Írland. Síðast þegar ég gáði voru þetta allt saman aðildarríki Evrópuráðsins sem hafa bæði fullgilt og lögfest mannréttindasáttmála Evrópu, mannréttindasáttmála sem felur í sér alþjóðlegar skuldbindingar sem eru fyrirmyndin að mannréttindakafla stjórnarskrárinnar eins og við þekkjum hana, þar á meðal erum við tala um eignarréttinn og atvinnufrelsið og jafnræðisregluna sem hefur verið vísað til hér í dag. Það liggur nefnilega fyrir að ekki er útlit fyrir að lagabreytingarnar hafi áhrif á rekstrarleyfin sem þegar hafa verið gefin út eða verða útgefin, og þetta er mikilvægt, fram að gildistöku laganna. Það væri áhugavert að vita hversu mörg leyfi hafa verið gefin út frá því að hæstv. menningar- og viðskiptaráðherra tilkynnti um áform sín hér, hversu mörg leyfi hafa verið gefin út vegna þess að lögin hafa ekki enn tekið gildi. En ég ítreka að ég er hrygg yfir því að við skulum ekki hafa nýtt þetta tækifæri. Síðast þegar ég tók saman tölfræðina voru 1.907 rekstrarleyfi á landsvísu gefin út í þessu sama umhverfi, talað um að rúmlega 300 íbúðir séu í Reykjavík, þ.e. skammtímagisting í atvinnuskyni sem er þá í íbúðarhúsnæði. Skýringarnar eru bara þær að ekki sé hægt að ráðast í þessar breytingar, sem komið var á í tíð þáverandi hæstv. ferðamálaráðherra, Þórdísar Kolbrúnar Reykfjörð Gylfadóttur, árið 2018, án þess að stjórnarskrárvarin eignar- og atvinnufrelsisréttindi séu skert.

Ég ítreka það sem ég kom inn á áðan, ég hef kynnt mér minnisblað sem komið var áleiðis til hv. atvinnuveganefndar og ég þekki rökin sem þarna eru tilgreind. Það er vísað í fullgamla dóma að mínu mati, enda kannski ekki um auðugan garð að gresja í íslenskri lögfræði um þau mál sem heita mega áþekk. Löggjafinn hefur auðvitað helst skert atvinnufrelsi í þágu áþreifanlegra hagsmuna sem tengjast vernd fiskstofna við Íslandsstrendur; þetta eru fyrstu dómarnir sem maður lærir um í lögfræðinni, þetta eru stóru málin í síunni í almennu lögfræðinni.

Það er engin ástæða til að lengja þennan þingfund meira en ástæða er til, það eru auðvitað alls konar sjónarmið sem þarna koma fram. Það er óhætt að fullyrða að það sé margt sem bendir til að í þessum málum, og nú tala ég hér sem aðili sem tel mig hafa einhverja þekkingu á málaflokknum, hnígi mjög sterk rök að því að það sé alls ekki hafið yfir vafa að þau réttindi sem eru að veði geti talist vera réttindi í þágu almannahagsmuna. Ég held að það sé mjög sterkt að benda á það að þegar ráðherra, hver sem það nú er hverju sinni, undirritar reglugerð, setur reglugerð, sem festir ákveðin réttindi í sessi, þá á það almennt séð, nema meiri háttar hagsmunir færi rök fyrir öðru, að vera innan valds Alþingis, löggjafarvaldsins, að gera breytingar á þeirri tilhögun. Það er ekki forsvaranleg afstaða að segja: Hér breytti ráðherra leiknum. Við verðum að sitja undir þeim óeðlilegu rekstrarskilyrðum á markaði, því óeðlilega umhverfi sem búið var til á þeim tíma, vegna þess að annars verða réttindi skert. Það er með öðrum orðum hægt að búa til sólarlagsákvæði. Það er hægt að útfæra þetta með einhverjum hætti þar sem það verður fyrirsjáanlegt innan einhvers tíma að leyfin geti runnið sitt skeið. Með öðrum orðum er hægt að búa þannig um hnútana að sveitarfélagi sé hreinlega heimilt að gera breytingar á umhverfinu. Við sjáum það bara reglulega gerast. Mér finnst gífurlega mikilvægt að hér séu stjórnarskrárbundin mannréttindi varin en mér finnst líka ástæða til að kalla fram þá staðreynd að það er verið að brjóta á mannréttindum með því að útfæra þetta fyrirkomulag svona. Það er full ástæða til að benda á það að nú verða á þessum sama markaði til tveir hópar sem búa við gerólík skilyrði, það eru afleidd áhrif af þessu fyrirkomulagi. Handhafar eldri rekstrarleyfanna og svo þessir sem koma nýir inn á markað — þetta eru aðilar sem keppa á sama markaði, bjóða sömu þjónustu til sama hóps en annar greiðir umtalsvert hærri fasteignagjöld en hinn. Afleidd áhrif af þessu eru fyrirséð. Ef við tölum bara um Reykjavík verður væntanlega setið á þessum íbúðum, þær fara ekki á sölu á markaði. Eru þessi leyfi framseljanleg, getum við búið þannig um hnútana, geta þau færst á aðrar íbúðir? Ég veit það ekki. Með þessum rúmlega 300 leyfum sem eru bundin við íbúðir á besta stað í borginni — já, ég held að það verði setið á þeim. Þetta eru íbúðir sem nú sæta til að mynda ekki brunavarnaeftirliti Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins, ef marka má umsagnir frá slökkviliðinu, í samræmi við raunverulega notkun. Það er hægt að tína ýmislegt til hérna, ýmislegt sem er ekki gagnslaust í því skyni að takmarka mikilvæg réttindi sem vissulega felast í atvinnuréttindunum; það er hægt að takmarka slík réttindi í þágu lögmætra og málefnalegra hagsmuna.

Ég vil ekki hlaupa hér að neinum ályktunum, ég er ekki að segja að hér sé bersýnilega hægt að fara eina eða aðra leið. Ég held hins vegar að við sem löggjafi verðum stundum að taka upplýsta ákvörðun um það að horfa á meiri hagsmuni og meta þá mögulega á kostnað annarra. Það er verkefnið sem við erum með hér. Ég veit hins vegar að þessi ríkisstjórn virðist vera mjög áhugasöm um útgáfu ótímabundinna leyfa, hvort sem það er í þágu landeldis, ný útlendingalög gera ráð fyrir ótímabundinni skipan kærunefndar útlendingamála og svo þetta. Þetta er ákveðin nýlunda í íslenskri stjórnsýslu, að leyfi séu bara gefin út ótímabundin. Og ég ætla svo sem ekki að leggja meira á vogarskálarnar í því, það hefur nú verið rætt ágætlega í ótengdu máli hér á þinginu. En ég held að við þurfum að vera gagnrýnin því að stundum er þess virði að taka slaginn. Ef það er í alvöru svo að ráðherra hafi unnið gegn sanngjörnu og réttlátu umhverfi á markaði án þess að hafa til þess ásetning árið 2018 — ég er ekki að væna hæstv. ráðherra um það vegna þess að við erum öll bara mannleg. En ef það er svo að afleidd áhrif af þessari ákvörðun eru þau að ójafnvægi hefur skapast á markaði með þeim hætti sem reynt er að laga hér en þó bara gagnvart ákveðnum hluta þá verður íslenska ríkið bara mögulega að súpa seyðið af því, svo að það sé bara sagt. Við getum ekki látið hugsanlega skaðabótagreiðslu ráða öllu hér í því að taka ekki ákvarðanir sem eru réttlátastar fyrir alla á markaði. Það er mitt mat. Ég held að hér hafi hv. atvinnuveganefnd ekki kannað málið í þaula, svo að ég segi bara alveg eins og er. Hér var ekki að öllu leyti lagt mat á áhrif á jafnræði á markaði. Ég væri mjög til í að vita hversu mörg leyfi hafa orðið til frá því að það varð ljóst að lagasetningin lægi fyrir, sem munu þá dvelja í eldra fyrirkomulagi. Ég er áhugasöm um að vita hvað við ætlum að gera til að bæta úr sjálfsákvörðunarrétti sveitarfélaganna. Ég hef áhyggjur af þessu. Vonir mínar stóðu til þess að við gætum gert þetta aðeins betur en það sem hefur verið útfært hér. Ég vil svo innilega koma því á framfæri að þessi aðgerð er ekki í þágu Grindvíkinga, bara svo að það sé sagt. Athugasemd menningar- og viðskiptaráðuneytisins í minnisblaðinu sem komið var á framfæri til hv. atvinnuveganefndar staðfestir það að ábatinn af þessari ráðstöfun sé ekki svo veigamikill. Annað hvort verður að vera. Ég vona að það hafi komist til skila frá mér. Ég vek hins vegar líka athygli á því að auðvitað styðjum við allar ráðstafanir í þágu þess að breyta skilyrðum á markaði. Ég vil bara leggja áherslu á þessi sjónarmið, mér finnst nauðsynlegt að þau fái að heyrast. Það er gott að við séum að taka skref í rétta átt en skrefin mættu vera stærri.