154. löggjafarþing — 103. fundur,  29. apr. 2024.

skák.

931. mál
[16:08]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir frumvarpi til laga um skák á þskj. 1378, 931. mál. Um er að ræða frumvarp til nýrra heildarlaga um stuðning ríkisins við skák. Því er ætlað að koma í stað laga um launasjóð stórmeistara í skák annars vegar og laga um Skákskóla Íslands hins vegar.

Stuðningur ríkisins við skákhreyfinguna á sér langa sögu en frá árinu 1957 hafa stórmeistarar í skák notið launa beint úr ríkissjóði. Núgildandi löggjöf um launasjóð stórmeistara í skák og um Skákskóla Íslands er að stofni til frá árinu 1990. Miklar breytingar hafa orðið á samfélaginu og löggjöf og brýnt að taka þessi lög til endurskoðunar.

Með frumvarpi þessu er lagt til að í stað launasjóðs stórmeistara í skák verði settur á fót afrekssjóður í skák. Þar verði horft til einstakra verkefna og framgangs þeirra en í dag eru stórmeistarar í ráðningarsambandi beint við ríkið. Þá verði horft til þess möguleika að styrkja efnilegt skákfólk sem stefnir að alþjóðlegum árangri en hingað til hafa eingöngu þeir sem hlotið hafa nafnbótina stórmeistari fengið greiðslur úr ríkissjóði. Jafnframt verði rekstur Skákskóla Íslands og önnur fræðslumál í skák færð alfarið til framkvæmdar hjá Skáksambandi Íslands og grasrótarsamtökum í skák í stað þess að sérstök lög gildi um Skákskóla Íslands.

Frumvarpið er unnið í góðu samráði við Skáksamband Íslands og skákhreyfinguna. Því er ætlað að nútímavæða löggjöf um skák og stuðning ríkisins við hana og styðja áfram við það markmið að þeir sem skara fram úr í skák hafi tækifæri til að helga sig skáklistinni standi hugur til þess og ná árangri á alþjóðavísu. Jafnframt er markmiðið að styðja við efnilegt fólk til að ná alþjóðlegum skákáföngum og að efla Skáksamband Íslands og grasrótarstarfsemi aðildarfélaga Skáksambandsins.

Virðulegi forseti. Meginefni frumvarpsins er útfærsla á nýjum afrekssjóði í skák. Lagt er til að ábyrgð á starfrækslu sjóðsins verði hjá mennta- og barnamálaráðherra. Yfir sjóðnum verði stjórn sem skipuð verði tveimur fulltrúum frá Skáksambandi Íslands og einum fulltrúa sem tilnefndur er af mennta- og barnamálaráðuneytinu. Stjórnin mun sinna faglegum þáttum sem tengjast úthlutun úr sjóðnum, þar á meðal að móta stefnu sjóðsins og gera tillögur til ráðherra um úthlutun hverju sinni ásamt því að fylgja eftir verkefnum skákfólksins sem fær úthlutun úr sjóðnum. Lagt er til að styrkir úr sjóðnum verði almennt veittir einu sinni á ári til þriggja til tólf mánaða í senn til skilgreindra verkefna stórmeistara í skák og eftir atvikum efnilegs skákfólks sem stefnir að alþjóðlegum árangri. Gert er ráð fyrir að nánari útfærsla styrkveitingar úr afrekssjóði í skák verði í reglugerð.

Gert er ráð fyrir að tími verði gefinn til að undirbúa nýtt fyrirkomulag og það taki gildi 1. febrúar 2025. Ekki er hægt að breyta núverandi fyrirkomulagi nema með því að rjúfa ráðningarsamband stórmeistara í skák og því er lagt til að störf þeirra sem fengið hafa laun á grundvelli laga um launasjóð stórmeistara í skák verði lögð niður. Í ljósi þess hversu fáir einstaklingar njóta nú launa úr sjóðnum þykir ekki annað rétt en að framangreindar breytingar verði gerðar í einu lagi. Hvað fjárhagsáhrif varðar er ekki gert ráð fyrir breytingum fyrir ríkissjóð enda verði sömu fjármunum varið til verkefnisins þótt þeim verði úthlutað eftir nýjum aðferðum.

Virðulegi forseti. Eins og ég hef komið inn á hafa orðið breytingar á samfélaginu og löggjöf frá árinu 1991 og orðið brýnt að taka löggjöf um skák til endurskoðunar. Frumvarpinu sem er afurð þessarar endurskoðunar er ætlað að styðja betur við það markmið að þeir sem skara fram úr í skák hafi tækifæri til að nýta þá styrkleika sína. Ég vil að öðru leyti vísa til greinargerðar þeirrar er fylgir frumvarpinu en þar er ítarlega fjallað um og gerð grein fyrir efni þess. Að lokinni þessari umræðu legg ég til að frumvarpinu verði vísað til 2. umræðu og hv. allsherjar- og menntamálanefndar til frekari umfjöllunar.