skák.
Forseti. Ég velti því aðeins fyrir mér til hvers við þurfum sérlög um afrekssjóð í einni íþrótt. Af hverju ekki alveg eins að setja sérlög um afrekssjóð fyrir bogfimi eða Catan þess vegna eða jafnvel ýmiss konar tölvuleiki því að það er ýmiss konar — skák er í dag almennt séð bara leikin á tölvu, það er algengasta notkunin í dag. Við erum komin dálítið út í tölvuleikjaspilun þegar allt kemur til alls. Það eru til ýmsir aðrir leikir líka sem eru bæði spilaðir á borði og í tölvu og hví ekki afrekssjóður fyrir þær íþróttir líka? Svo er það svolítið merkilegt þegar maður fer að skoða þetta nánar að íþróttasambönd og íþróttafélög eru með sérstakar skattaívilnanir, þurfa ekki að borga virðisaukaskatt af starfsemi sinni og ýmislegt svoleiðis en það er óljóst nákvæmlega hver ákveður hvað er íþrótt og hvað er ekki íþrótt og það er eiginlega dálítið merkilegt ef maður pælir í því. Það hefur alveg verið rifrildi um það hvort skák sé íþrótt eða ekki. Mér finnst það augljóslega vera íþrótt, en hví þá ekki aðrir tölvuleikir, hvort sem þeir eru einungis spilaðir á stafrænu formi eða líka á einhvers konar borði? Kannski ættum við að hugsa þetta aðeins víðar og aðeins nútímalegar en að vera að setja sérlöggjöf um eina íþrótt umfram aðrar og huga kannski að því hvernig við getum gert þetta á skipulagðari hátt, að styrkja og styðja íþróttastarfsemi almennt.