154. löggjafarþing — 103. fundur,  29. apr. 2024.

skák.

931. mál
[16:14]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, það skal viðurkennast hér að þeim sem hér stendur, þegar hann kom að þessu máli, var ekki kunnugt um að það væru tvenn sérlög um skák á Íslandi, annars vegar um stórmeistaralaun og hins vegar um Skákskóla Íslands. Vissulega er það eitt af því sem kom til skoðunar og samtals, hvort skynsamlegt væri að fella bæði lögin út og þetta væri einfaldur samningur við skákhreyfinguna en niðurstaðan varð sú, m.a. á þessum sagnfræðilega og menningarlega grunni sem rakinn var hér, að skynsamlegt væri að halda áfram löggjöf utan um skákina. Það voru tvenn sérlög sem rætt var um, ef menn fletta í þingskjölum og öðru þá voru miklar ræður um þessi mál og mikill vilji á þeim tíma til þess að standa með þessum hætti að skákinni þannig að niðurstaðan varð sú að færa þetta inn í ein sérlög, þessa tvenns konar löggjöf sem er í dag. Eðlilega er það, eins og annað, ekki hafið yfir gagnrýni.

Hins vegar er það spurning hvað skilgreinir íþrótt. Skák fellur ekki undir Íþrótta- og Ólympíusamband Íslands til að mynda. Þar erum við með íþróttalög og skák hefur ekki fallið þar undir. Við erum líka að endurskoða stuðninginn við íþróttastarfið og reiknum með því að geta kynnt afrakstur þeirrar vinnu á morgun fyrst. Í framhaldinu þurfum við síðan að setjast yfir lagabreytingar, umgjarðir og annað á íþróttalögum og öðru sem tengist stuðningi við afreksstarf í íþróttum almennt. Það sem hv. þingmaður bendir á varðandi rafíþróttir, ef má kalla þær svo, vegna þess að það er líka ágreiningur í gangi um hvort kalla megi þær rafíþróttir eða ekki — þá er þetta bara umræða sem er í gerjun í samfélaginu en niðurstaðan varð sú í ráðuneyti mennta- og barnamála, m.a. eftir samtal við skákhreyfinguna, að skynsamlegt væri að hafa þetta áfram í sérlögum en fækka þeim úr tvennum í ein.