154. löggjafarþing — 103. fundur,  29. apr. 2024.

skák.

931. mál
[16:16]
Horfa

Björn Leví Gunnarsson (P) (andsvar):

Herra forseti. Hæstv. ráðherra kom einmitt inn á rafíþróttirnar. Þær eru sumar iðkaðar innan vébanda íþróttafélaga og ungmennafélaga og það eru meira að segja haldnar keppnir í Laugardalshöll, Laugardalshöll dekkuð í þó nokkra daga þar sem hafa verið haldin ýmiss konar alþjóðleg mót. Samt falla þær íþróttir, rafíþróttir, ekki undir t.d. skattalög, sem ég veit að hæstv. ráðherra hefur ekki nein afskipti af, það er á vettvangi annars ráðherra. Þarna er ákveðin mismunun á milli þess einhvern veginn hvernig rafrænt útlit íþróttarinnar er þegar allt kemur til alls, hvort það eru sérlög eða sérskattaívilnanir eða ekki. Mér finnst það dálítið merkilegt þannig að ég held að við ættum að huga aðeins að því hvernig við getum gert þetta einhvern veginn á jafnræðisgrundvelli.