skák.
Virðulegi forseti. Já, þetta er kannski ekki beint eitthvað sem kallar á bein svör en eins og ég sagði áðan þá erum við jafnframt að skoða umgjörðina í kringum annað afreksstarf, í kringum annað afreksíþróttastarf. Ég reikna með því að það muni kalla á endurskoðun íþróttalaga. Samhliða því reiknum við með því að leggja til við þingið ákveðna tímalínu í því vegna þess að það tengist fleiri lögum en því sem heyrir undir þann ráðherra sem hér stendur þannig að það er undir í annarri endurskoðun. En það sem þingmaðurinn bendir á hér að þetta hefði átt að tengjast samhliða þeirri endurskoðun — ég held að það sé vel hægt að endurskoða umgjörðina í kringum skákina sjálfstætt eins og við erum að leggja til hér við þingið. Ég bendi aftur á að um skákina hafa gilt tvenn sérlög, annars vegar um stórmeistara og hins vegar um Skákskóla Íslands. Niðurstaðan varð sú að skynsamlegra — í staðinn fyrir að leggja þessi lög niður, og hefði verið hægt að gera einfaldan samning við skákhreyfinguna — væri að skapa umgjörðina utan um það áfram og það varð niðurstaðan eftir samtöl og samvinnu við skákhreyfinguna og forystu hennar. Þess vegna erum við komin hingað með þetta frumvarp sem ég vonast til að geti farið til nefndar. Síðan eru bara, eðlilega, vangaveltur um íþróttahreyfinguna almennt og rafíþróttir og það sem lýtur að þeim sem eru að þroskast og gerjast og kalla á endurskoðun lagaumgjarðar og annað því um líkt í framhaldinu.