154. löggjafarþing — 103. fundur,  29. apr. 2024.

námsstyrkir.

934. mál
[16:24]
Horfa

Halla Signý Kristjánsdóttir (F):

Virðulegi forseti. Ég kem upp til þess í fyrsta lagi að fagna þessu frumvarpi sem er mjög gott. Það er kominn tími til að við tökum þessa vinkla inn, enda er þetta 20 ára gamalt frumvarp og margt hefur breyst á þeim tíma í samfélaginu. Það eru svo sem líka tækifæri sem felast í því að taka þetta frumvarp enn frekar upp og horfa til annarra þátta, bara til þeirra þátta sem hafa breyst í menntamálum hér á landi.

Fyrst vil ég nefna skóla sem er nýkominn á og það er Lýðskólinn á Flateyri, ef við nefnum hann bara. Þessum lögum fylgir reglugerð nr. 692/2003 sem væri hægt að taka upp. Í vinnu nefndarinnar væri hægt að nefna það í nefndaráliti að gera þar breytingar, þ.e. við skoðun á reglum og skilgreiningar á styrkjum. Þá gætu nemendur lýðskólans fallið undir skilgreiningar laga og reglugerða utan þess að námið telst ekki til framhaldsskólastigs. Það er rétt og því er mikilvægt að lýðskólaforminu verði bætt inn í reglurnar sem styrkhæfu námi og þetta verði tekið til umfjöllunar.

Þegar maður fer yfir þessa reglugerð þá er ýmislegt sem er barn síns tíma. Eins og lýðskólinn er starfræktur þá eru þetta nemendur sem eru allir langt að komnir að stunda sitt nám. Það er alveg möguleiki að taka utan um þennan hóp, auk þess sem hægt væri að horfa til þess að styrkja tekjulitla nemendur sem eru kannski við aðra skóla líka.

Síðan er annað sem maður hnýtur um þegar maður fer yfir þessa reglugerð, það eru t.d. bæði aksturs- og dvalarstyrkir nemenda. Ég hef heyrt af því að nemendur sem dvelja fjarri sinni fjölskyldu, nemendur í dreifbýlinu, hafi dottið stundum á milli skips og bryggju. Það er ein skilgreining hérna inni sem á ekki lengur við, að mér finnst. Þegar nemandi er orðinn 18 ára og dvelur á lögheimili sínu en er fjarri fjölskyldu sinni þá getur hann fengið styrk ef hann býr hjá maka sínum, þó að hann sé 18 ára, eða að kynforeldrum sé ekki til að dreifa. Það er náttúrlega svolítið sérstakt að þó að foreldrum sé til að dreifa og nemandi dvelji t.d. einhvers staðar eins og hjá afa sínum og ömmu þá sé hann ekki styrkhæfur vegna þess að hann þarf að sýna fram á lögheimili eða búa hjá maka sínum.

Ég held að það sé mjög mikilvægt að ráðuneytið horfi til þess að taka upp þessa reglugerð með það að augnamiði og markmiði að horfa bara á það samfélag sem er í dag, hvernig fjölskyldan er samansett og hvað er hægt að gera til að styrkja nemendur í öðruvísi skólum, eins og lýðskólum þar sem er hvorki framhaldsskólanám né nám á háskólastigi. Í lýðskólunum er ekki um að ræða námsmat líkt og í framhaldsskólum og því þyrfti að nálgast skilgreiningar á reglubundnu námi á annan hátt. Í lýðskólunum er haldið utan um mætingu og krakkarnir þurfa að skila ákveðnum formerkjum til að klára skólann þannig að ég held að við getum alveg bætt þessari skilgreiningu við.

Ég ætlaði bara að koma hérna upp og nefna þetta í þessu sambandi og tala þá líka inn í nefndina, að við séum að horfa til þess í nefndarálitinu að það verði teknar til skoðunar þessar breytingar sem ég hef nefnt.