námsstyrkir.
Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þetta og segja að við erum með það í undirbúningi að endurskoða umrædda reglugerð og ætlum að gera það samhliða þessum breytingum á lögunum. Það væri bara tilvalið að vinna það með nefndinni við vinnslu þessa máls og ef vilji er til þess að skoða frekari lagabreytingar en þær sem um ræðir hér er ráðuneytið og sá sem hér stendur tilbúinn að vinna það með nefndinni. Ég held að það væri bara jákvætt. En eins og ég segi er fleira í þessari reglugerð sem er komið aðeins til ára sinna. Þetta námsstyrkjakerfi er gríðarlega mikilvægt fyrir ákveðinn hóp og krefst þess að við tökum þetta til endurskoðunar samhliða endurskoðun reglugerðarinnar.
Ég þakka því þingmanninum hvatninguna en um leið hvet ég nefndina til dáða og lýsi því yfir að við erum tilbúin til þess að nefndin komi að endurskoðun á reglugerðinni vegna þess að þarna er ekkert sem ætti ekki að geta myndast nokkuð skýr þverpólitísk samstaða um milli þings og framkvæmdarvalds.