ákvarðanir nr. 185/2023 um breytingu á IX. viðauka og nr. 240/2023 um breytingu á XI. viðauka við EES-samninginn.
Frú forseti. Ég mæli hér fyrir nefndaráliti um tillögu til þingsályktunar um staðfestingu ákvarðana sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 185/2023, um breytingu á IX. viðauka (fjármálaþjónusta) og nr. 240/2023, um breytingu á XI. viðauka (rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið) við EES-samninginn.
Nefndin hefur fjallað um málið og fengið á sinn fund gesti frá fjármála- og efnahagsráðuneyti, háskóla-, iðnaðar- og nýsköpunarráðuneyti og utanríkisráðuneyti. Með tillögunni er leitað heimildar Alþingis til að staðfesta eftirfarandi ákvarðanir sameiginlegu EES-nefndarinnar:
Í fyrsta lagi ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 185/2023 frá 5. júlí 2023, um breytingu á IX. viðauka (fjármálaþjónusta) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) 2022/858 frá 30. maí 2022, um tilraunaregluverk fyrir innviði markaða sem byggjast á dreifðri færsluskrártækni og um breytingu á reglugerð (ESB) nr. 600/2014 og nr. 909/2014 og tilskipun 2014/65/ESB.
Í öðru lagi ákvörðun sameiginlegu EES-nefndarinnar nr. 240/2023 frá 22. september 2023, um breytingu á XI. viðauka (rafræn fjarskipti, hljóð- og myndmiðlun og upplýsingasamfélagið) við EES-samninginn og að fella inn í samninginn reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) frá 2018, nr. 1807 frá 14. nóvember 2018, um ramma um frjálst flæði ópersónulegra upplýsinga í Evrópusambandinu og framkvæmda ákvörðun framkvæmdastjórnarinnar (ESB) frá 2022, nr. 1669 frá 10. nóvember 2020, um tilraunaverkefni til að koma til framkvæmdar tilteknum ákvæðum um samvinnu á sviði stjórnsýslu sem sett eru fram í reglugerð Evrópuþingsins og ráðsins (ESB) frá 2018, nr. 1807, um ramma um frjálst flæði ópersónulegra upplýsinga í Evrópusambandinu með því að nota upplýsingakerfi fyrir innri markaðinn. Framsetning tillögunnar telst að mati meiri hlutans í samræmi við 7. gr. reglna um þinglega meðferð EES-mála.
Meiri hlutinn leggur til að tillagan verði samþykkt og undir hana rita hv. þingmenn Diljá Mist Einarsdóttir, formaður utanríkismálanefndar, Hafdís Hrönn Hafsteinsdóttir, Birgir Þórarinsson, Bjarni Jónsson og Logi Einarsson. Hv. þingmenn Katrín Sif Árnadóttir og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson sátu hjá við afgreiðslu málsins og hv. þingmenn Jón Gunnarsson og Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir voru fjarverandi við afgreiðslu málsins.