endurnot opinberra upplýsinga.
Virðulegi forseti. Ég mæli fyrir hönd stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar fyrir nefndaráliti með breytingartillögu um frumvarp til laga um breytingu á lögum um endurnot opinberra upplýsinga, nr. 45/2018. Markmið frumvarpsins er að auka möguleika fyrirtækja, einkaaðila og almennings til hagnýtingar á upplýsingum frá hinu opinbera og stuðla að hagvexti og nýsköpun til aukinnar samkeppnishæfni og hagsbóta fyrir samfélagið allt.
Við vinnslu málsins kallaði nefndin eftir umsögnum og fékk til sín gesti og er nánar greint frá því í nefndarálitinu sem liggur frammi. Fyrir nefndinni voru gestir almennt sammála um mikilvægi þess að auðvelda aðgengi að opinberum gögnum. Það væri forsenda fyrir aukinni nýsköpun og verðmætaþróun að gögn og upplýsingar frá hinu opinbera væru aðgengileg auk þess sem það getur leitt til betri stefnumótunar og ákvarðanatöku innan stjórnsýslunnar. Því væri mikilvægt að sett yrði sérstök stefna um endurnotkun opinberra gagna en slíka stefnumótun skorti. Umfjöllun um opin gögn og endurnotkun þeirra birtist í ýmsum stefnum stjórnvalda en heildræna stefnu skorti. Nefndin telur mikilvægt að við þessu verði brugðist og leggur áherslu á að unnið verði að sérstakri stefnu um opin gögn og endurnotkun þeirra.
Við umfjöllun málsins var bent á að í sumum tilvikum, þegar hið opinbera hefur falið einkaaðilum að vinna gögn fyrir sig, hafi aðgengi að þeim verið ábótavant. Fram komu sjónarmið um að mikilvægt sé að tryggja að gögn sem unnin eru af einkaaðilum fyrir opinbert fé séu einnig aðgengileg til endurnota eftir því sem við á. Nefndin tekur undir mikilvægi þess að gögn sem unnin eru fyrir opinbert fé séu almennt aðgengileg enda standi lög ekki gegn því, t.d. vegna ákvæða um þagnarskyldu. Að mati nefndarinnar er því mikilvægt að opinberir aðilar gæti að því í samningum við einkaaðila um gerð gagna að tryggður sé réttur til endurnota eða aðgangs að þeim verði við því komið.
Fyrir nefndinni var bent á að til þess að markmið frumvarpsins náist þurfi opinberar stofnanir og fyrirtæki að búa yfir nauðsynlegum innviðum til að gera gögn aðgengileg í takti við þær kröfur sem frumvarpið gerir um framsetningu þeirra og aðgengi innan tiltekins tíma. Fram kom að stofnanir væru misjafnlega í stakk búnar til að takast á við þær breytingar sem felast í frumvarpinu, m.a. með hliðsjón af tæknibúnaði og þekkingu innan stofnana og skýrist það m.a. af uppsafnaðri þörf fyrir endurnýjun búnaðar hjá viðkomandi stofnunum. Innleiðingin kann því að vera áskorun fyrir þær stofnanir án þess að komi til viðbótarútgjalda á komandi árum. Fyrir nefndinni kom fram að viðeigandi ráðuneyti muni leitast við að gera grein fyrir slíkri þörf við vinnu við gerð fjárlaga en einnig var bent á að hægt væri að sækja um styrki í styrkjaáætlun Evrópusambandsins.
Þá var jafnframt bent á við meðferð málsins að kostnaðaráhrif frumvarpsins væru óljós. Í greinargerðinni segir að helsti kostnaður vegna frumvarpsins sé þó tengdur innleiðingu framkvæmdarreglugerðar (ESB) 2023/138, um mjög verðmæt gagnasett. Við gildistöku hennar skapast skylda fyrir stofnanir til að veita aðgengi að tilteknum gagnasettum án endurgjalds, á véllæsilegu sniði, veitt um forritaskil og með magnniðurhali, þar sem það á við.
Í greinargerð frumvarpsins kemur fram að gert sé ráð fyrir að kostnaði og hugsanlegu beinu tekjutapi verði fundinn staður innan fjárhagsramma þeirra ráðuneyta og stofnana sem hafa aðkomu að málinu. Hins vegar sé það mat ráðuneytisins, eftir samráð við þau ráðuneyti sem frumvarpið varðar, að samþykkt málsins muni ekki leiða til tekjumissis að neinu ráði þar sem mikill meiri hluti þeirra gagna sem teljast til verðmætra gagnasetta er aðgengilegur án endurgjalds nú þegar.
Nefndin bendir á að flokkar mjög verðmætra gagnasetta samanstanda m.a. af landupplýsingum, umhverfisgögnum, veðurfræði, hagskýrslum, upplýsingum um fyrirtæki og eignarhald þeirra og upplýsingum um hreyfanleika eða samgöngunet. Þær stofnanir sem koma til með að birta slík gagnasett eru margar mikilvægar þjónustu- og öryggisstofnanir innan stjórnsýslunnar. Nefndin leggur áherslu á að stofnanir fái nauðsynlegan stuðning til að standa undir kröfum frumvarpsins og leggur áherslu á að hugað verði að því við innleiðingu framkvæmdarreglugerðarinnar að lokinni upptöku reglugerðarinnar í EES-samninginn.
Forseti. Við víkjum þá að breytingartillögum nefndarinnar. Með frumvarpinu er lögð til breyting á gildissviði laga um endurnot opinberra upplýsinga þess efnis að felld verði brott ákvæði sem undanskilja Alþingi og stofnanir þess og dómstóla frá ákvæðum laganna. Í greinargerð frumvarpsins er vísað til breytinga á gildissviði upplýsingalaga um að handhöfum löggjafar- og dómsvalds sé nú að meginstefnu skylt að fylgja sömu efnisreglum og handhöfum framkvæmdarvalds við ákvarðanir um rétt almennings til aðgangs að gögnum í vörslu þeirra, auk þess sem fram kemur að breytingin sé gerð til að tryggja samræmi landsréttar og EES-réttar. Nefndin vill því undirstrika, rétt eins og kemur fram í umsögnum skrifstofu Alþingis, að handhöfum löggjafarvalds hefur ekki að meginstefnu verið skylt að fylgja sömu reglum og gilda um framkvæmdarvaldið um ákvarðanir um rétt almennings til aðgangs að gögnum.
Hið rétta er að gildissvið upplýsingalaga, nr. 140/2012, tekur til stjórnsýslu Alþingis eins og hún er nánar afmörkuð í lögum um þingsköp Alþingis og reglum forsætisnefndar sem settar eru á grundvelli þeirra. Gildissvið upplýsingalaga tekur því ekki til þeirrar starfsemi sem fer fram af hálfu Alþingis sem fulltrúasamkomu þjóðkjörinna fulltrúa, sbr. 2. mgr. 91. gr. laga um þingsköp Alþingis. Upplýsingalög taka enn fremur ekki til umboðsmanns Alþingis, Ríkisendurskoðunar og rannsóknarnefnda Alþingis samkvæmt lögum um rannsóknarnefndir, sbr. 2. málslið 4. mgr. 2. gr. upplýsingalaga.
Það þýðir að með breytingu b-liðar 2. gr. frumvarpsins, sem fellir brott undanþágu Alþingis og stofnana þess frá lögum um endurnot opinberra upplýsinga, muni lögin einungis taka til stjórnsýslu Alþingis eins og það er afmarkað í þingsköpum og reglum forsætisnefndar þar um. Þá munu lögin ekki taka til stofnana þingsins enda eru þær undanskildar upplýsingalögum.
Til að tryggja samræmi við ákvæði upplýsingalaga leggur nefndin til þá breytingu að komi upp ágreiningur um endurnot opinberra upplýsinga frá stjórnsýslu Alþingis þá fari um hann og málsmeðferð samkvæmt lögum um þingsköp Alþingis og reglum forsætisnefndar sem settar eru á grundvelli þeirra.
Þá eru lagðar til minni háttar lagatæknilegar breytingar sem þarfnast ekki sérstakrar umfjöllunar.
Að framansögðu virtu leggur nefndin til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð hefur verið grein fyrir. Undir nefndarálitið rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Þórunn Sveinbjarnardóttir, Sigmar Guðmundsson, Ágúst Bjarni Garðarsson, Ásthildur Lóa Þórsdóttir, Halla Signý Kristjánsdóttir, Hildur Sverrisdóttir, Steinunn Þóra Árnadóttir og Indriði Ingi Stefánsson.