meðferð sakamála, meðferð einkamála, gjaldþrotaskipti o.fl.
Virðulegur forseti. Við ræðum um mál 691, frumvarp til laga um breytingu á lögum um meðferð sakamála, lögum um meðferð einkamála og lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. (miðlun og form gagna, fjarþinghöld, birting ákæra o.fl.).
Mig langar aðeins að beina athyglinni að birtingu ákæru og annarra gagna sem birta skal á sama hátt í miðlægri þjónustugátt stjórnvalda sem um er rætt í kafla 5.1. Þar er fjallað um að ólíkt því sem ráðgert var þegar frumvarpsdrög voru birt í samráðsgátt, að nóg væri að viðtakandi hefði innskráð sig í rafrænt pósthólf til að ákæra teldist réttilega birt, væri nú þess í stað lagt til að hann þyrfti að staðfesta móttöku svo að ákæra teljist réttilega birt. Þetta er til bóta og í samræmi við ábendingar í umsögnum nokkurra aðila í samráðsgátt, þar á meðal Hagsmunasamtaka heimilanna sem beindu reyndar aðallega sjónum sínum að stefnubirtingum fremur en ákærum, sem eru ekki beinlínis á málefnasviði samtakanna, Um stefnubirtingar segir aftur á móti í kafla 5.5. í greinargerð frumvarpsins:
„Í því sambandi bendir ráðuneytið á að birtingar á stefnum voru ekki til umfjöllunar við undirbúning frumvarpsins og einkaaðilar hafa enn sem komið er ekki aðgang að hinu stafræna pósthólfi. Það útilokar þó ekki að breyttur birtingarháttur stefna komi til athugunar síðar.“
Einnig er komið inn á þetta í nefndaráliti meiri hluta allsherjar- og menntamálanefndar en þar segir:
„Þá gerðu sumir umsagnaraðilar athugasemdir við að ekki væri gert ráð fyrir breytingum á 83. gr. laga nr. 91/1991, um meðferð einkamála, í sömu veru hvað birtingu stefnu varðaði og ekki útskýrt hvers vegna ekki væri ráðist í slíkar breytingar. Í minnisblaði ráðuneytisins, sem og í kafla 5.3 í greinargerð með frumvarpinu, kemur á hinn bóginn fram að birtingar á stefnum hefðu ekki verið til umfjöllunar við undirbúning þess og einkaaðilar hefðu enn sem komið er ekki aðgang að hinu stafræna pósthólfi. Ekki væri því mælt fyrir um birtingu stefnu við meðferð einkamála í stafrænu pósthólfi stjórnvalda. Ekki væri þó útilokað að breyttur birtingarháttur stefna kæmi til athugunar síðar meir.“
Þrátt fyrir þetta kom fram í fjölmiðlum föstudaginn 19. apríl, eftir að málið var afgreitt úr nefnd og sama dag og nefndarálitið var birt, að innheimtufyrirtækið Gjaldskil væri búið að innleiða stafrænar stefnubirtingar í samvinnu við hugbúnaðarfyrirtækið Justikal. Þarna fer ekki saman hljóð og mynd. Ráðuneytið segir að rafrænar stefnubirtingar séu ekki komnar til framkvæmda en í fjölmiðlum segir að þær séu að koma til framkvæmda. Þarf ekki að bregðast við þessu með breytingu á frumvarpinu sem liggur fyrir Alþingi til að taka af allan vafa um að ekki megi birta stefnur með rafrænum hætti í einkamálum eða þá a.m.k. kveða á um að slík birting þurfi að lúta sömu skilyrðum og rafræn birting ákæru, þ.e. aðeins með birtingu í gegnum island.is og að staðfesta þurfi móttöku hennar? Að minnsta kosti hlýtur að þurfa að gefa skýringar á því hvort stafrænar stefnubirtingar séu komnar til framkvæmda eða hvort von sé á öðru frumvarpi síðar þar sem tekið verði á þessu sérstaklega.
Til hliðsjónar má benda á frumvarp dómsmálaráðherra um breytingu á lögum 90/1989, um aðför, og lögum um nauðungarsölu (miðlun og form gagna, notkun fjarfundarbúnaðar, birtingar o.fl.) sem fjallar líka um stafræna, þ.e. tæknilega hlutlausa, málsmeðferð en þá í nauðungarsölumálum. Þar var einmitt brugðist við athugasemdum Hagsmunasamtaka heimilanna í samráðsgátt og sami áskilnaður gerður og með ákærur, þ.e. að tilkynningar teljist ekki réttilega birtar í stafrænu pósthólfi fyrr en viðtakandi hefur staðfest móttöku þeirra. Því ber að fagna enda hefði annars skapast hætta á því að hægt yrði að selja húsnæðið ofan af fólki án vitundar þess ef það er ekki með rafræn skilríki eða hefur ekki tök á því að vakta rafræna pósthólfið sitt af einhverjum ástæðum.
Meginpunkturinn er sá að það hlýtur að þurfa að samræma þetta þannig að hvort sem um er að ræða ákæru, stefnu eða tilkynningu um nauðungarsölu verði birtingin ekki talin gild nema viðtakandi staðfesti móttöku. Það gengur ekki að skilja stefnubirtingar einar eftir í lausu lofti án slíks aðskilnaðar fyrst innheimtufyrirtæki úti í bæ eru þegar í óðaönn að hefja innleiðingu rafrænna stefnubirtinga. Það búa öll sömu rök að baki enda getur verið ekki síður íþyngjandi að vera stefnt fyrir dóm án þess að hafa í raun fengið vitneskju um stefnuna eins og að vera ákærður í sakamáli eða eiga yfir höfði sér nauðungarsölu á heimili sínu. Samræmingar er þörf og þess vegna væri e.t.v. full ástæða til að kalla fyrrnefnt frumvarp um breytingu á lögum um meðferð sakamála, lögum um meðferð einkamála og lögum um gjaldþrotaskipti o.fl. aftur inn í nefnd á milli 2. og 3. umræðu til að fara betur yfir það sem snýr að stefnubirtingum.