meðferð sakamála, meðferð einkamála, gjaldþrotaskipti o.fl.
Frú forseti. Ég og hv. þingmaður erum hjartanlega sammála, fólkið fyrst. Af því að hv. þingmaður fór hér í ræðu um það hversu mikilvægt væri að hafa fólk í fyrsta sæti langar mig að nefna að það að fara þessa leið, blönduðu leiðina, út frá því sem var fyrst lagt til í samráðsgáttinni og svo því sem er í frumvarpinu — þessi blandaða leið, að við séum frekar að huga að réttaröryggi einstaklinganna, er einmitt í þá átt hvað varðar sakamálin. Ég myndi líka telja það jákvætt fyrir yngri kynslóðir og jafnframt þá sem eru eldri að við séum að gera kerfin okkar nútímavæddari og notendavænni. Ég geri mér líka grein fyrir því að það sitja ekki allir við sama borð þegar kemur að tækninni og þess vegna er mikilvægt að gera þann áskilnað að þetta eru allt heimildir sem hægt er að grípa til sem birtingarleiðar. En aðrar birtingarleiðir eru hæfar og í samtölum okkar við umsagnaraðila kom fram að eftir sem áður yrðu þær leiðir notaðar sem henta einstaklingunum best. Ef rafræna leiðin er ekki best þá yrði eitthvað annað notað til birtingar. Þetta verður síðan endurskoðað, vonandi innan tveggja ára, eins og kemur fram í nefndaráliti meiri hlutans.
Mig langar að fá að vera aðeins ósammála því að leggja þetta tvennt að jöfnu, að það sé einhvers konar aðför að neytendum að færa hlutina í rafrænt horf, þegar við erum í raun að reyna að leita leiða til að mæta fólki þar sem það er. Hvað varðar einkamálin þá held ég að það megi kannski bara fylgjast vel með hvernig þróunin verður í þessu, sjá hvernig þetta hentar fyrir sakamálin áður en við förum í það að breyta fyrirkomulagi í einkamálum. Það verður mun umfangsmeira og stærra verkefni þegar við förum að hleypa einkaaðilum inn í stafræna pósthólfið island.is.