meðferð sakamála, meðferð einkamála, gjaldþrotaskipti o.fl.
Virðulegi forseti. Við erum sammála, ég og hv. þingmaður, um að fólkið eigi að vera fyrst. Staðreyndin er sú að ég kem úr því umhverfi að ég hef horft á stefnubirtingar og hvernig staðið hefur verið að málum gagnvart neytendum. Það hræðir mig þegar sagt er: Það eru heimildir til þæginda. Þær verða samt ekki nýttar ef eitthvað annað hentar einstaklingnum betur vegna þess að einhvern veginn endar það alltaf þannig að það er einstaklingurinn sem liggur óbættur hjá garði. Það endar alltaf þannig.
Ég er í sjálfu sér ekkert endilega á móti því að verið sé að nota rafrænt form. Við erum fyrst og fremst að tala um að það þurfi alltaf að koma staðfestingar og það verða að koma staðfestingar um að viðkomandi hafi séð þetta. Það er ekki bara hægt að senda og segja: Við erum búin að senda. Eins og var gert í sumum málum, eins og t.d. varðandi skuldabréf sem ekki fundust. Þá var bara auglýst í Lögbirtingablaðinu og ef þú last það ekki þá voru þau bara — hver les Lögbirtingablaðið? Svo voru málin bara ógilt fyrir dómstólum og enginn mætti til að mótmæla nema í einu máli. Það eru svona hlutir sem hafa gerst. Við verðum að fá staðfestingar og svo, eins og ég segi, kemur þarna fram að það sé fyrirtæki sem er byrjað eða búið að innleiða stafrænar stefnubirtingar. Þetta kemur fram í fjölmiðlum. (Gripið fram í.) Jú, stafrænar stefnubirtingar.
Ég segi bara: Þetta eru hlutir sem þarf að fara ofboðslega varlega í. Ég er alls ekkert á móti því að verið sé að nota rafrænu leiðina til þæginda. En það verður alltaf að gæta að hagsmunum fólksins. Þarna þarf að vera samræmi og að stefnubirtingar liggi svo einhvern veginn eftir í öllu þessu; ég sé ekki alveg tilganginn með því. Það hlýtur að vera hægt að hafa hliðstæðar reglur og lög um þetta.