154. löggjafarþing — 104. fundur,  30. apr. 2024.

Störf þingsins.

[13:46]
Horfa

Teitur Björn Einarsson (S):

Herra forseti. Að gefnu tilefni og í ljósi yfirlýsingar hæstv. matvælaráðherra um lagareldisfrumvarpið sem hér hefur verið talsvert til umræðu, þá sérstaklega sá þáttur er snýr að þeirri breytingartillögu að gera rekstrarleyfið ótímabundið frá því sem það er núna, tímabundið rekstrarleyfi í 16 ár, þá verð ég að segja að mér hugnast ágætlega að komin sé einhver lending í þetta og að hv. atvinnuveganefnd geti snúið sér að mikilvægari og öðrum efnisþáttum frumvarpsins. Komin er ágætislending í þetta enda var það svo, herra forseti, að í ræðu minni um þetta frumvarp í síðustu viku varaði ég við þessari breytingu og taldi hana óskynsamlega í ljósi þeirra gríðarlegu valdheimilda sem stjórnvöldum væri falið, óljósum jafnvel eða matskenndum, til að afturkalla leyfi. Það eru gríðarlega viðamiklar valdheimildir í ljósi þeirra breytinga. Ég tel skynsamlegt að við stígum skref til baka eins og nú er verið að boða og horfum á þetta út frá meginatriðum málsins. Hvað skiptir máli? Það skiptir máli að búa fiskeldi, sem er vaxandi og mikilvæg atvinnugrein, rétta og skynsamlega umgjörð, að fyrirsjáanleiki sé í rekstrarumhverfinu og í stjórnsýslunni, að stjórnsýslureglur og eftirlit sé skilvirkt, eðlilegt og sanngjarnt. Þetta er kjarni málsins. Ég tek fagnandi allri umræðu um þetta í málinu sem bíður okkar hér í þinginu. Lykilatriðið er að fiskeldi, sjókvíaeldi, á Vestfjörðum og Austfjörðum er mikilvæg atvinnugrein. Það er hægt að búa þannig um hnútana að skynsamlegt jafnvægi sé á milli uppbyggingar og nýtingar náttúruauðlinda og svo verndunar umhverfis. Það er í þágu fólksins og í þágu landsmanna allra.