tekjuskattur.
Virðulegi forseti. Við ræðum hér mál sem eru orðin til vegna síðustu kjarasamninga og það er bara af hinu góða að við séum að standa við gefin loforð hvað varðar viðbætur inn í tilfærslukerfin. En þarna erum við að tala um milljarða, við erum að tala um 3 milljarða, held ég, inn í barnabótakerfið og 2 milljarða á næsta ári og einhverja 5–7 milljarða inn í þennan sérstaka húsnæðisstuðning.
En ég á bara erfitt með að skilja það hvers vegna það er alltaf verið að velja svona flóknar leiðir. Við greiðum barnabætur vegna einhverrar stöðu sem fólk er í og við greiðum þær bara beint til foreldranna. Það þykir bara sjálfsagt og eðlilegt að við treystum foreldrum fyrir þeim fjármunum sem þau fá í formi barnabóta og þess vegna skil ég ekki og á erfitt með að átta mig á hvers vegna er ekki hægt að (Forseti hringir.) viðhafa sams konar vinnubrögð þegar kemur að þessum vaxtastuðningi.