tekjuskattur.
Virðulegi forseti. Útfærslan er til stuðnings því sem kemur fram í kjarasamningum og yfirlýsingum ríkisstjórnarinnar og hún er einmitt til þess að vera ekki verðbólguhvetjandi og til þess að vinna á vöxtum og vera vaxtastuðningur til einstaklinga. Það kemur m.a. fram í umsögn Alþýðusambands Íslands að áhersla hafi verið lögð á það að vaxtabætur greiddust inn á lánið og kæmi til lækkunar á afborgunum fremur en að greiðast beint út við álagningu. Það er um (Forseti hringir.) sama efni sem ríkisstjórnin var með yfirlýsingu um og það er það sem hér er verið að útfæra í takti við markmið (Forseti hringir.) frumvarpsins.