154. löggjafarþing — 104. fundur,  30. apr. 2024.

tekjuskattur.

918. mál
[15:22]
Horfa

Guðbrandur Einarsson (V) (andsvar):

Virðulegi forseti. Það er hálfur sannleikur að segja að þetta sé ekki verðbólguhvetjandi. Öll framlög til heimilanna auka ráðstöfunartekjur og það getur auðvitað í sjálfu sér verið verðbólguhvetjandi. Það sem ég skil ekki hvers vegna — ég lít bara þannig á að hér sé bara verið að flækja einfalt mál. Og þá einhvern veginn velur fólk: Já, bara um að gera að hafa þetta bara flókið. Þarna er verið að styðja við fólk sem er búið að greiða út vexti á síðasta ári og verið að koma til móts við það. Fólk sem greiddi vexti á síðasta ári fær eitthvað til baka með framlagi en þá ætlar ríkið að ákveða hvernig fólk á að ráðstafa því. Við erum að sjá heimili berjast í bökkum núna vegna vaxtagreiðslna síðasta árs. Fólk er að kaupa ný sumardekk undir bílana sína, undirbúa börnin fyrir leikjanámskeið sumarsins, kaupa hjól og annað þess háttar. Af hverju má ekki treysta fólki til að ráðstafa sínum peningum sjálft?