154. löggjafarþing — 104. fundur, 30. apr. 2024.
tekjuskattur.
918. mál
Frú forseti. Hér er um að ræða frumvarp sem er hluti af heildaraðgerðapakka ríkisstjórnarinnar þegar kemur að stuðningi við kjarasamninga. Þetta er sú útfærsla og sú leið sem er valin einmitt í þeim tilgangi að koma til móts við heimili vegna vaxtabyrði sem er. Það er tilgangurinn með frumvarpinu og það er lagt fram í tengslum við, líkt og ég sagði áðan, stærri heildaraðgerðapakka ríkisstjórnarinnar við heimilin og hér er útfærslan á því hvernig skuli framkvæma þetta.