154. löggjafarþing — 104. fundur,  30. apr. 2024.

tekjuskattur.

918. mál
[15:26]
Horfa

Frsm. 1. minni hluta efh.- og viðskn. (Ásthildur Lóa Þórsdóttir) (Flf) (andsvar):

Virðulegi forseti. Já, ég er að gera lítið úr þessu. Mér finnst þetta ekki vera upp í nös á ketti. Mér finnst þetta ekki muna nokkrum sköpuðum hlut fyrir fólkið í landinu. Þetta skiptir engu máli í stóra samhengi málsins. Þegar vaxtaafborganir hafa hækkað um 200.000–300.000 kr. í hverjum einasta mánuði þá hefur þetta inngrip alveg gríðarlega lítið að segja. Ég velti því líka fyrir mér hvort verkalýðshreyfingin hafi virkilega sett fram þessa kröfu eða hvort það hafi bara verið þannig að lengra hafi ekki verið komist og hún bara orðið að sætta sig við þetta á þennan hátt. Ég bara skil ekki hvernig hægt er að vaxtapína fólk svona brjálæðislega eins og hefur verið gert í skjóli þessarar ríkisstjórnar sem hefur ekkert gert til að koma í veg fyrir það og svo ætlar hún að koma með, ég veit ekki hvað maður á eiginlega að kalla þetta, einhverja svona tutlu til að sætta fólk við eitthvað og svo ætlar hún örugglega að hreykja sér af því: Við gerðum nú þetta, við komum með vaxtabætur. Jei, vei.