tekjuskattur.
Frú forseti. Hv. þingmaður verður bara að eiga það við sjálfa sig hvort hún telji þetta vera aðgerð sem skipti máli eða skipti ekki máli. Ég tel að það skipti gríðarlega miklu máli að hér hafi náðst langtímakjarasamningar. Mér finnst skipta máli að við vinnum að því að ná niður verðbólgu og vöxtum. Mér finnst skipta máli að ríkisstjórnin komi hér með aðgerðapakka upp á 20 milljarða inn í þetta. Og að gera lítið úr því og láta eins og það skipti ekki neinu máli fyrir heimilin í landinu — ég bara skil ekki úr hvaða raunveruleika það kemur.