tekjuskattur.
Virðulegur forseti. Ríkisstjórnin er að drukkna í einhverju forræðisblæti. Ég bara næ ekki hvernig í ósköpunum er hægt að vera með svona málflutning hérna. Skýringin á því að það þurfi að gera þetta svona flókið er sú að það þurfi að draga úr verðbólgu. Bíddu, af hverju setjum við þá ekki allar bætur, barnabætur og allar bætur, beint inn á einhverja reikninga, mjög flókna aðferðin, dreifa þeim niður á 12 mánuði? Ef þessu er dreift niður á 12 mánuði er verið að minnka greiðslur í hverjum mánuði. Þá hljóta peningarnir að koma örar hjá fólkinu, mismunurinn. Af hverju er fólk ekki látið fá þetta strax? Hvers vegna þessi óskaplega forræðishyggja? Það er til kerfi, það er verið að borga vaxtabætur, einfalt kerfi, beint inn á reikninginn, ekkert vesen, pottþétt. Hvers vegna í ósköpunum er verið að flækja þetta? Ekki segja mér að þetta sé náttúrulögmál. Ekki segja mér að verkalýðshreyfingin séu á móti þessu heldur virðist það bara vera eitthvert issjú hjá þessari ríkisstjórn eða nefndinni að gera þetta svona.