tekjuskattur.
Frú forseti. Líkt og ég hef áður sagt þá er hér um að ræða niðurstöðu úr samtali milli aðila og yfirlýsingu frá ríkisstjórninni, og hér er útfærslan komin. Það verður bara að hafa það ef hv. þingmaður er ekki hlynntur þessari aðgerð. Ég tel hana vera til bóta. Ég tel að hér séum við að sníða ramma í kringum aðgerð og skýra þannig út að hún komist til framkvæmda fljótt og örugglega og verði heimilunum í landinu til hagsbóta. Auðvitað skiptir máli að fara eftir þeirri niðurstöðu sem kom út úr samtali og fylgja því eftir hér í þingsal.