154. löggjafarþing — 104. fundur,  30. apr. 2024.

tekjuskattur.

918. mál
[15:44]
Horfa

Frsm. 2. minni hluta efh.- og viðskn. (Oddný G. Harðardóttir) (Sf):

Frú forseti. Það mál sem við ræðum nú er komið til vegna þess að gert var samkomulag í tengslum við kjarasamninga, til að greiða fyrir þeim, um að barnabætur yrðu auknar og að greiddur yrði út sérstakur vaxtastuðningur. Okkur er vandi á höndum, þingmönnum í efnahags- og viðskiptanefnd, og sjálfsagt fjármálaráðuneytinu einnig og hæstv. fjármálaráðherra, vegna þess að í raun er búið að gera samkomulagið og við þurfum bara að finna út úr því hvernig við getum fest það í lögum.

Ég er ánægð með að í tengslum við kjarasamninga hafi komið aukinn stuðningur við barnafólk og að húsnæðisbætur í þessu formi skuli hafa verið ákveðnar. Ég hefði samt haft tölurnar með öðrum hætti. Ég hefði t.d. hækkað upphæðina sem fylgir hverju barni undir sjö ára aldri. Henni er haldið í 130.000 kr. Árið 2022 voru greiðslur með börnum undir sjö ára 148.000 kr. Svo þegar breytingar urðu á kerfinu í fyrra var, í tengslum við þær breytingar, þessi upphæð lækkuð niður í 130.000 kr. og hún er látin haldast sem þýðir í raun skerðingu þannig að ef við myndum hækka þennan hlut um 6% færi þessi tala úr 130.000 kr. í 137.800 kr. En það er svolítil lenska að þegar búið er að setja einhver viðmið eru þau látin rýrna vegna þess að þau fylgja ekki launavísitölunni í landinu. En við getum ekkert gert í þessu. Það er búið að semja um þetta.

Síðan eru það þá vaxtagreiðslurnar. Samkomulagið var um að sérstakur vaxtastuðningur ætti að vera 23% af vaxtagjöldum ársins 2023 vegna lána sem tekin hafa verið vegna kaupa eða byggingar á íbúðarhúsnæði til eigin nota og búseturétturinn er þarna undir líka. Þannig er upphæðin reiknuð út en hún má síðan aldrei fara yfir 150.000 kr. á ári fyrir hvern einstakling, ekki yfir 200.000 kr. á ári hjá einstæðu foreldri og ekki yfir 250.000 kr. hjá hjónum eða sambúðarfólki og síðan eru eigna- og tekjuskerðingar sem eru inni í frumvarpinu. Í samkomulaginu er sem sagt ákvæði um það að sá sem hefur fengið ákvarðaðan vaxtastuðning getur valið um það að vaxtastuðningurinn fari bara beint frá Fjársýslunni inn á höfuðstól einhvers ákveðins láns sem hann velur sjálfur eða þá að hann getur valið að stuðningurinn fari með jöfnum greiðslum inn á og komi til móts við afborganir og þá er í frumvarpinu gert ráð fyrir að sá stuðningur fari einnig í gegnum Fjársýsluna og að Fjársýslan eigi að borga inn á lánið þann hluta sem tilgreindur er en svo borgar bara einstaklingurinn á móti það sem upp á vantar. Þarna stendur hnífurinn í kúnni. Þetta er mikið flækjustig í kringum það að fara með þennan hluta í gegnum Fjársýsluna, þ.e. ef fólk velur að fá jafnar greiðslur inn á lánið það sem eftir er ársins 2024. Hins vegar gæti fólk sem á í erfiðleikum með að ná endum saman munað verulega um að fara þessa leið frekar en að greiða beint inn á höfuðstólinn.

Vandinn er flækjustigið og ég er þeirrar skoðunar, eftir að hafa farið í gegnum umsagnir og samtöl við gesti í efnahags- og viðskiptanefnd, að það sé óþarfi að vera með þessar flækjur. Það er alger óþarfi. Ríkið getur staðið fullkomlega við sitt samkomulag við aðila vinnumarkaðarins með því að greiða bara þennan vaxtastuðning út eins og almennar vaxtabætur eru greiddar beint til einstaklings. Það er hægt að gera með jöfnum greiðslum það sem eftir er af árinu 2024, eftir að vaxtagreiðslurnar hafa verið ákvarðaðar.

Þess vegna, forseti, legg ég til breytingu í þá veru að sérstakar vaxtabætur verði greiddar milliliðalaust, þ.e. beint til lántaka eins og almennt er gert við greiðslu almennra vaxtabóta og þannig verði framkvæmdin einfölduð og um leið tryggt að tæknilegir erfiðleikar við útfærsluna verði ekki til þess að fólk verði af vaxtastuðningi.

Samkvæmt frumvarpinu er mögulegt að nýta bæturnar til lækkunar á afborgunum, eins og ég fór yfir áðan, sem mun að sama skapi hækka ráðstöfunartekjur viðkomandi lántaka. Niðurstaðan væri því hin sama fyrir lántaka, hvort sem greitt er beint til hans eða greiðslurnar látnar fara til lánveitenda til lækkunar afborgana af láni, óski lántaki þess. Tæknilega getur verið ómögulegt fyrir Fjársýsluna að greiða beint inn á afborgun lána þannig að ef við bara tökum þetta flækjustig í burtu þá gengur samkomulagið milli aðila vinnumarkaðarins fullkomlega upp varðandi vaxtagreiðslurnar, því ráðstöfunartekjurnar verða nákvæmlega þær sömu.

Ég legg því til að þetta verði bara einfaldað með þessum hætti og að flækjustigið verði tekið út og öll vandræði við útreikninga og breytingar á kerfum o.s.frv. eru þá teknar út í leiðinni en samkomulagið heldur að fullu.

En líkt og framsögumaður sagði hér áðan, framsögumaður meiri hlutans, sem mælti fyrir nefndaráliti þeirra og breytingartillögum, þá hefur málið verið kallað inn til nefndar á milli umræðna og ég mun gera slíkt hið sama við þær breytingartillögur sem ég hef verið að mæla fyrir núna svo að nefndarmenn í efnahags- og viðskiptanefnd geti þá borið breytingartillögu mína saman við breytingartillögu meiri hlutans og metið hvora leiðina sé æskilegra að fara.