154. löggjafarþing — 104. fundur,  30. apr. 2024.

tekjuskattur.

918. mál
[15:56]
Horfa

Teitur Björn Einarsson (S) (andsvar):

Frú forseti. Ég þakka hv. þingmanni svarið. Það er alveg rétt sem komið er inn á með ráðstöfunartekjur fólks. Hvernig aukum við ráðstöfunartekjur fólks, hvernig aukum við kaupmátt fólks og velferð í landinu? Það er það heildarsamhengi sem horfa þarf til. Það eru kjarasamningarnir sem slíkir, þau viðmið sem þar er að finna, heildaraðgerðir ríkisstjórnarinnar sem eru boðaðar í tengslum við þá kjarasamninga, sem munu auka útgjöld ríkisins í þessi millifærslukerfi okkar um 20 milljarða á ári út samningstímann. Það eru barnabætur og húsnæðisstuðningur. Og já, það er sérstök aðgerð upp á 5–7 milljarða á þessu ári, einskiptisaðgerð þar sem ekki er farið inn í sjálft vaxtabótakerfið heldur sértæk aðgerð. Allt miðar þetta að því að auka ráðstöfunartekjur fólks og fyrst og fremst að ná verðbólgunni niður, og um það erum við hv. þingmaður algerlega sammála. Það er mesta kjarabótin sem almenningur í landinu getur fengið samhliða þessum skynsamlegu kjarasamningum, samhliða þessum ráðstöfunum sem miða að því að styrkja okkar velferðarkerfi. Það er lykilatriði. Það er það samtal sem leiddi til þess að útfærslan á sérstaka vaxtabótastuðningnum yrði með þessum hætti, greitt inn á höfuðstól láns, 5–7 milljarðar, og eftir atvikum að vali fólks til lækkunar afborgana, að sú aðgerð verði ekki þensluhvetjandi. Það er það sem ég hef áhyggjur af með tillögu hv. þingmanns, að þar sé vikið af braut sem mörkuð hefur verið. Sé horft til tilmæla Seðlabankans og fleiri aðila er þetta upplegg í frumvarpi hæstv. fjármálaráðherra skynsamlegt og það er það sem meiri hluti efnahags- og viðskiptanefndar er að leggja til grundvallar.