154. löggjafarþing — 104. fundur,  30. apr. 2024.

rannsókn vegna snjóflóðs sem féll í Súðavík 16. janúar 1995.

1039. mál
[16:08]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Ég vil leyfa mér að fagna því að þetta mál sé komið hingað til atkvæðagreiðslu. Það er ótrúlega mikilvægt að fram fari sjálfstæð rannsókn á snjóflóðinu í Súðavík. Þetta hefur verið baráttumál aðstandenda þeirra sem létu lífið í þessu skelfilega slysi í marga áratugi og ég er mjög glöð að við höfum náð góðri sátt um myndun þessarar rannsóknarnefndar. Þetta mál var vel unnið í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd og ég vil sérstaklega vekja athygli á því að við komum okkur saman um að hafa þrjá nefndarmenn í þessari nefnd. Það var ekki sjálfgefið en það er ótrúlega mikilvægt til þess að viðeigandi sérfræðiþekking geti verið í nefndinni og ég vildi vekja sérstaklega athygli á því að það er vonandi hér með tryggt, ef þessi atkvæðagreiðsla fer eins og ég vænti að hún fari, og þar með geti þessi mikilvæga nefnd hafið störf sem fyrst og vonandi líka skilað af sér sem fyrst til að það náist einhver lending í þessu máli.