154. löggjafarþing — 104. fundur,  30. apr. 2024.

rannsókn vegna snjóflóðs sem féll í Súðavík 16. janúar 1995.

1039. mál
[16:11]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Frú forseti. Við í Vinstrihreyfingunni – grænu framboði styðjum þessa þingsályktunartillögu um að koma á fót rannsóknarnefnd vegna snjóflóðanna. Ég vil taka undir það að vinnan sem fór fram í stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd vegna málsins var mjög góð. Hún var ekki alltaf einföld eða auðveld, enda um stórt og erfitt mál að fjalla. Ég held að það skipti máli fyrir okkur sem þjóð að kafa ofan í, læra af og draga fram hvað það er sem gerist í svona hörmulegum náttúruhamförum eins og þarna áttu sér stað og ég vona að þessi rannsókn verði samfélagi okkar þegar upp er staðið til góðs þótt þetta geti orðið svolítið erfitt meðan á því stendur.