rannsókn vegna snjóflóðs sem féll í Súðavík 16. janúar 1995.
Virðulegur forseti. Ég tek undir með hv. þingmönnum sem hafa komið hingað upp á undan mér og eru í hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Ég styð þessa tillögu og það er fyrst og fremst þar sem rannsókn fór ekki fram þegar þessir skelfilegu atburðir áttu sér stað. Óskir aðstandenda um slíka skoðun hafa verið einlægar og einarðar í nær þrjá áratugi og þeir eiga skilið þau svör sem eru í boði. Ég tel þó rétt að hér komi skýrt fram að við skoðun málsins hjá hv. stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd kom ekkert fram sem gaf vísbendingu um að atburðir hafi þarna átt sér stað með saknæmum hætti. Ekkert gefur tilefni til að halda að þarna hafi atburðir orðið með saknæmum hætti en það er rétt að þessi sorglegi atburður fái loksins tilhlýðandi skoðun sem verður vonandi til þess að hægt verði að setja punkt við þennan harmþrungna viðburð í sögu samfélagsins alls.