154. löggjafarþing — 104. fundur,  30. apr. 2024.

rannsókn vegna snjóflóðs sem féll í Súðavík 16. janúar 1995.

1039. mál
[16:13]
Horfa

Ágúst Bjarni Garðarsson (F) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegur forseti. Ég ætla að koma hér upp og taka undir með þeim hv. þingmönnum sem hafa talað á undan mér. Við í Framsókn styðjum heils hugar þessa tillögu. Hér er um viðkvæmt mál að ræða, hræðilegt slys sem varð á þessum tíma sem hefur skilið eftir sár á íslensku samfélagi í áratugi. Það sem er kannski mikilvægt en hefur komið hér fram er að á sínum tíma var það auðvitað þannig að það má kannski segja að það hafi ekki farið fram nægilega mikil rannsókn. Ég tel að þessi tillaga verði kannski til þess að við fáum svör og séum — vegna þess að við búum einfaldlega á þessu landi okkar þar sem náttúruhamfarir ganga reglulega yfir, eins og við þekkjum bara nýleg dæmi um — að læra af reynslunni og getum tekið á þeim atburðum sem hér verða í nánustu framtíð.