154. löggjafarþing — 104. fundur,  30. apr. 2024.

meðferð sakamála, meðferð einkamála, gjaldþrotaskipti o.fl.

691. mál
[16:19]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við í Flokki fólksins höfum óskað eftir því að frumvarp þetta gangi aftur til allsherjar- og menntamálanefndar milli 2. og 3. umræðu til að skoða nánar lagaumgjörðina varðandi rafrænar birtingar og stefnur í einkamálum. Þrátt fyrir að búið sé að benda á að þetta frumvarp heimili ekki rafrænar stefnubirtingar í einkamálum og að ekki standi til að veita einkaaðilum aðgang að island.is til slíkra stefnubirtinga er það svo að ráðherra hefur vald til að setja reglugerð sem heimilar nákvæmlega það án nokkurrar aðkomu Alþingis. Fjármálaráðherra hefur til að mynda þegar sett reglugerð sem heimilar lögmönnum að stunda innheimtuaðgerðir í gegnum stafrænt pósthólf stjórnvalda og ekki er útilokað að sú reglugerðarheimild nái þegar til stefnubirtinga í einkamálum sem varða innheimtuaðgerðir. Ég tel að nefndin þurfi að athuga betur hvort tilefni sé til að gera breytingar til að koma í veg fyrir að einkaaðilum verði falið vald til að birta dómstefnur í gegnum stafrænt pósthólf stjórnvalda án þess að tryggt sé að birting hafi komist til þess er hún beinist að, líkt og gera á um ákærur í þessu frumvarpi þar sem ákæra telst aðeins réttilega birt þegar ákærði hefur staðfest móttöku hennar.