154. löggjafarþing — 104. fundur,  30. apr. 2024.

meðferð sakamála, meðferð einkamála, gjaldþrotaskipti o.fl.

691. mál
[16:21]
Horfa

Berglind Ósk Guðmundsdóttir (S) (um atkvæðagreiðslu):

Forseti. Það er ekki tilefni til að fara efnislega í málið á þessum tíma en ég ætla ekki að leggjast gegn því að málið fari til frekari umfjöllunar í nefndinni. Frumvarpið fjallar þó um eitt og ekki annað og ég tel að það sem hv. þingmaður nefnir falli undir annað, þar af leiðandi ekki þetta frumvarp. Samt sem áður tel ég gott að við fáum málið aftur inn, köllum eftir þessum upplýsingum sem hv. þingmaður hefur gert grein fyrir hér, bæði núna og í gær, því það er mikilvægt að við vöndum vel þessa lagasetningu, séum vel upplýst um þá ákvörðun sem við erum að taka því að frumvarpið er gott, markmið þess er gott og verði það að lögum verður það mikil réttarbót.