154. löggjafarþing — 104. fundur, 30. apr. 2024.
meðferð sakamála, meðferð einkamála, gjaldþrotaskipti o.fl.
691. mál
Virðulegi forseti. Eins og fram kom í ræðu minni áðan óskum við í Flokki fólksins eftir því að málið fari aftur inn í nefnd á milli 2. og 3. umræðu. Það er nauðsynlegt að tryggja hagsmuni einstaklinga sem oft standa höllum fæti og vinna á þeim annmörkum sem ég nefndi áðan í ræðu minni. Flokkur fólksins mun því sitja hjá að þessu sinni og þingmaður greiðir því ekki atkvæði.