154. löggjafarþing — 104. fundur,  30. apr. 2024.

tekjuskattur.

918. mál
[16:24]
Horfa

Oddný G. Harðardóttir (Sf) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Þetta mál er nauðsynlegt að fari í gegn vegna kjarasamninga. Þarna er verið að hækka barnabætur og veita sérstakan vaxtastuðning og við í Samfylkingunni styðjum þessar aðgerðir og reyndar fögnum því að það hafi verið farið í að styrkja stuðningskerfin við barnafólk og þá sem skulda húsnæðislán í gegnum kjarasamningana. Við gerum hins vegar athugasemdir við framkvæmd. Ég er með sérstaka breytingartillögu um hana sem liggur hér á þingskjali og ég fór yfir áðan í umræðunni en hef óskað eftir því að hún fari bara til nefndarinnar á milli umræðna þannig að allir í efnahags- og viðskiptanefnd geti lagst yfir þá breytingartillögu og borið hana saman við breytingartillöguna sem meiri hlutinn er að smíða um sama atriði.