154. löggjafarþing — 104. fundur,  30. apr. 2024.

tekjuskattur.

918. mál
[16:28]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við greiðum hér atkvæði um frumvarp sem er útfærsla á lögum vegna stuðnings stjórnvalda vegna kjarasamninga. Hér er um að ræða sérstakan vaxtastuðning að umfangi 5–7 milljarða kr. sem kemur til viðbótar almennum vaxtastuðningi. Við í Vinstri grænum styðjum framgang þessa máls og teljum það skipta miklu máli og vera mjög til góðs og munum einnig greiða atkvæði með breytingartillögum meiri hluta efnahags- og viðskiptanefndar sem eru til þess að auka á skýrleika við framkvæmd málsins.