tekjuskattur.
Virðulegur forseti. Þetta frumvarp er í samræmi við þau fyrirheit sem gefin voru við gerð síðustu kjarasamninga og er af hinu góða. Það er frábært að það sé verið að styrkja barnabótakerfið og þarna er verið að setja einhverja þrjá milljarða inn í það og tvo á næsta ári. En síðan þegar við horfum á hinn svokallaða vaxtastuðning þá finnst mér verið að fara ranga leið. Þarna er um að ræða fólk sem hefur verið að greiða vexti upp á milljónir á síðasta ári og það er hugsanlegt að hjón fái 250.000 kall í þennan vaxtastuðning en einhverra hluta vegna velur ríkisstjórnin að taka völdin af fólkinu og ætlar bara að ráðstafa þessu sjálf. Fólk fær ekkert um það að segja með hvaða hætti þessum fjármunum verði ráðstafað heldur á að setja þetta inn í bankana, gera þessa peninga að engu. Að fólkið fái ekki að ráða því hvernig þessum fjármunum er ráðstafað er að mínu mati bara forsjárhyggja eins og hún gerist best en Viðreisn mun að sjálfsögðu styðja þetta mál.