154. löggjafarþing — 104. fundur,  30. apr. 2024.

tekjuskattur.

918. mál
[16:30]
Horfa

Teitur Björn Einarsson (S) (um atkvæðagreiðslu):

Herra forseti. Við greiðum hér atkvæði um frumvarp sem er hluti af aðgerðum ríkisstjórnarinnar til stuðnings kjarasamningum á almennum vinnumarkaði sem gengið var frá í mars síðastliðnum. Markmið frumvarpsins er í samræmi við þá yfirlýsingu sem ríkisstjórnin gaf og vinna nefndarinnar hefur miðað að því að útfærslan og önnur atriði séu í samræmi við það. Þetta er hluti af heildaraðgerðum ríkisstjórnarinnar sem nema hátt í 20 milljörðum og svo verður það áfram út samningstímann. Það er munur á einskiptisaðgerð vegna sérstaks vaxtastuðnings sem er annars vegar í frumvarpinu og svo hins vegar því sem snýr að hækkun barnabóta, hækkun skerðingarmarka og lækkun skerðingarhlutfalls til að ná samræmi við aðalatriðið; að kaupmáttur launafólks vex með skynsamlegum kjarasamningum, með skynsamlegum ráðstöfunum ríkisstjórnarinnar því til stuðnings og vextir lækka samhliða hjöðnun verðbólgu. (Forseti hringir.) Það er mesta kjarabótin sem almennings í landinu bíður ef vel tekst til.