154. löggjafarþing — 104. fundur,  30. apr. 2024.

tekjuskattur.

918. mál
[16:32]
Horfa

Ásthildur Lóa Þórsdóttir (Flf):

Virðulegi forseti. Þetta er mjög einföld breytingartillaga sem í rauninni felst ekki í öðru en því að þessir fjármunir verði lagðir beint inn á reikning fólksins sem er búið að bera þessa vaxtabyrðar svo að það geti nú sinnt því sem það þarf, hugsanlega farið til tannlæknis, sett á bílinn sumardekk svo það fái ekki 80.000 kr. sekt ofan á allt annað fyrir að vera enn þá á nagladekkjum o.s.frv. Þetta eru hlutirnir sem heimilin hafa ekki fjármuni til að gera og þau verða að fá eitthvað í vasann. Og þó að þau fái þetta allt saman til sín þá er þetta samt ekki mikið í samanburði við þær byrðar sem þau hafa þurft að bera núna að undanförnu og ég vona innilega að þingheimur samþykki þetta.