154. löggjafarþing — 105. fundur,  30. apr. 2024.

tekjuskattur.

918. mál
[17:35]
Horfa

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir (P) (um atkvæðagreiðslu):

Virðulegi forseti. Við í minni hlutanum leggjum til einfaldari framkvæmd sem mun spara opinberum starfsmönnum töluverðan tíma í að klóra sig fram úr því hvernig eigi að framkvæma framkvæmd sem meiri hlutinn er búinn að fá vitneskju um að verði ótrúlega erfið þegar kemur að þessu. Það er auðvitað merkilegt út af fyrir sig að það sé þetta ríkur vilji til að bæta við yfirvinnutímum hins opinbera að það skuli halda fast í upprunalegt orðalag að ekki megi gera þetta eins og reynsla hefur verið af. Við leggjum til þessa einföldu breytingu. Það er reynsla af henni. Hún er skynsamlegri og ólíklegri til að koma okkur í einhver vandræði við framkvæmd þessa úrræðis og þar af leiðandi líklegri til þess að skila sér sem fyrst til þeirra sem á úrræðinu þurfa að halda, en þekkjandi þennan sal þá þurfum við væntanlega að koma hingað upp að nokkrum mánuðum liðnum og segja: Ég sagði ykkur það.