154. löggjafarþing — 105. fundur,  30. apr. 2024.

tekjustofnar sveitarfélaga.

1069. mál
[17:38]
Horfa

Steinunn Þóra Árnadóttir (Vg):

Forseti. Ég fagna þessu máli þar sem er verið að setja auknar fjárhæðir og meira trukk í Römpum upp Ísland. Þetta er mikilvægt til að bæta aðgengi allra að samfélaginu. Ég fagna því þegar farið er í slík átök, slíkar aðgerðir, en mig langar af þessu tilefni að segja að auðvitað ætti ekki að þurfa að vera með sérstakar aðgerðir heldur á að vinna að aðgengismálum jafnt og þétt. Ég þreytist ekki við að koma hingað upp og minnast þar á mikilvægi byggingarreglugerða því að eins og við höfum séð á þessu átaki vantar ekki húsnæði eða mannvirki þar sem aðgengi skortir. Ef við pössum ekki að byggja þannig að aðgengi sé fyrir alla þá þurfum við að vera í endalausum svona átökum. Það er óþarfi. Lærum þess vegna af þessu mikilvæga og góða máli. Stöndum vörð um það að huga alltaf að aðgengi fyrir öll.