154. löggjafarþing — 105. fundur,  30. apr. 2024.

sjúklingatrygging.

718. mál
[17:43]
Horfa

Frsm. meiri hluta velfn. (Líneik Anna Sævarsdóttir) (F):

Virðulegi forseti. Ég mæli hér fyrir hönd meiri hluta velferðarnefndar fyrir nefndaráliti um frumvarp til laga um sjúklingatryggingu. Með frumvarpinu er lagt til að sett verði ný heildarlög um sjúklingatryggingu en það byggist á vinnu starfshóps um heildarendurskoðun laga um sjúklingatryggingu, nr. 111/2000. Markmið frumvarpsins er að einfalda einstaklingum að sækja bætur vegna tjóns af völdum heilbrigðisþjónustu og auka tryggingavernd þeirra, samræma og einfalda kerfi sjúkratrygginga og auka skilvirkni í meðferð mála.

Nefndin hefur fjallað um málið og fékk á sinn fund gesti og bárust umsagnir eins og greint er frá í nefndarálitinu sem liggur frammi á þskj. 1582. Í kjölfar umfjöllunar nefndarinnar um málið vill meiri hlutinn árétta sérstaklega hér fjögur atriði. Fyrst það að nefndin fjallaði um lagaskilaákvæði frumvarpsins en með frumvarpinu er lagt til að lögin öðlist gildi 1. janúar 2025 og taki til tjónsatvika sem verða frá og með þeim tíma. Fram kemur í athugasemdum við ákvæðið að eldri lög gildi um þau atvik sem verða fyrir gildistökuna. Fyrir nefndinni var bent á þann möguleika að einhverjir sætu eftir án tryggingaverndar vegna atvika sem orðið hefðu fyrir gildistöku laganna ef þau hefðu ekki verið tilkynnt vátryggingafélögunum fyrir þann tíma. Meiri hlutinn vill árétta það sem fram kemur bæði í greinargerð og í minnisblaði frá heilbrigðisráðuneytinu og telur að þessi athugasemd eigi ekki við, með þeim rökum að ákvæði 14. gr. frumvarpsins um fyrningu krafna er samhljóða ákvæði 19. gr. laga um sjúklingatryggingu, núgildandi laga sem eru nr. 111/2000. Þar segir að kröfur um bætur fyrnist samkvæmt lögunum þegar fjögur ár eru liðin frá því að tjónþoli fékk eða mátti fá vitneskju um tjón sitt. Krafan fyrnist þó eigi síðar en þegar tíu ár eru liðin frá atvikinu sem hafði tjón í för með sér.

Í minnisblaði sem barst nefndinni frá heilbrigðisráðuneytinu segir að vátryggingafélögum beri nú skylda til að tryggja vátryggingartaka þannig að það samræmist 19. gr. núverandi laga um sjúklingatryggingu þar sem kveðið er á um þá fyrningarfresti sem hér var gerð grein fyrir. Meiri hlutinn tekur undir það sem fram kemur í þessu minnisblaði frá heilbrigðisráðuneytinu um tryggingavernd sjúklinga, að hún muni ekki skerðast við samþykkt frumvarpsins enda beri vátryggingafélög bótaábyrgð samkvæmt lögum og þeim fyrningarfrestum sem þar eru tilteknir.

Þá fjallaði nefndin um bótafjárhæðir og hámark skaðabóta en með frumvarpinu er lagt til að hámarksfjárhæð bóta verði hækkuð um 50% frá því sem nú er. Þá er lögð til sú breyting á gildandi regluverki að skýrt verði kveðið á um að um ákvörðun bótafjárhæðar samkvæmt lögum um sjúklingatryggingu fari samkvæmt I. kafla skaðabótalaga, nr. 50/1993. Fyrir nefndinni var velt upp þeim möguleika að hækka hámarksbótafjárhæðina enn frekar eða fella hámarksviðmiðin alfarið niður. Í því ljósi vill meiri hlutinn undirstrika það sem fram kemur í minnisblaði frá heilbrigðisráðuneyti að niðurfelling hámarksskaðabóta fæli að líkindum ekki í sér að málum sem færu fyrir dómstóla myndi fækka. Þá telur meiri hlutinn ekki forsendur til að fela Sjúkratryggingum Íslands að annast alfarið bótauppgjör, enda er það ekki hlutverk stofnunarinnar að meta saknæmi heilbrigðisstarfsmanna og tilgangur sjúklingatryggingar er að tryggja tjónþola víðtækari rétt á bótum en hann á samkvæmt almennum skaðabótareglum og gera honum auðveldara að ná fram rétti sínum.

Í þriðja lagi fjallaði nefndin um möguleg áhrif breytinganna á kostnaðarmat við kaup á heilbrigðisþjónustu og samanburð á kostnaðarmati milli ólíkra rekstrarforma í heilbrigðisþjónustunni. Meiri hlutinn vill í því sambandi leggja áherslu á mikilvægi þessara breytinga sem fela í sér skref í þá átt að gera kostnað við heilbrigðisþjónustu samanburðarhæfari óháð rekstrarformi þannig að allir veitendur heilbrigðisþjónustu séu jafnsettir við ákvarðanir um kaup á heilbrigðisþjónustu. Þá ítrekar meiri hlutinn það sem fram kemur í greinargerð með frumvarpinu, að ákvæðinu er ætlað að bæta réttarstöðu tjónþola með því að afnema þann greinarmun sem gerður er á því hjá hvaða stofnun eða aðila tjón verður, með því að færa málsmeðferðina alfarið á hendur einnar stjórnsýslustofnunar verði tjón við veitingu þjónustu.

Loks er fjórða atriðið sem nefndin vill árétta sérstaklega. Það var fjallað um reglugerðarheimild 15. gr. frumvarpsins en samkvæmt því ákvæði setur ráðherra í reglugerð nánari ákvæði um fjárhæð iðgjalds og skal fjárhæðin taka mið af fjölda mála og áætluðum kostnaði við bótagreiðslur og afgreiðslu mála. Þá skal hún einnig miðast við áhættustuðul og umfang heilbrigðisþjónustu. Í minnisblaði frá heilbrigðisráðuneyti segir að ráðuneytið muni útbúa áhættumat við ákvörðun iðgjalda sem taki mið af starfsstétt, starfsgrein, starfshlutfalli og fjölda læknisverka á ári. Enn fremur segir að útbúa þurfi kerfi hjá Sjúkratryggingum Íslands sem haldi utan um greiðslur, upplýsingar um hverjir séu tryggðir og hvort tryggingar séu í gildi þegar tjónsatvik verður. Meiri hlutinn telur mikilvægt og leggur áherslu á að reglugerðin verði sett sem fyrst eftir að lögin hafa verið samþykkt þannig að hún verði sett tímanlega áður en lögin taka gildi.

Auk þess leggur meiri hlutinn til breytingar sem eru tæknilegs eðlis og er ekki ætlað að hafa efnisleg áhrif.

Að framansögðu virtu leggur meiri hluti velferðarnefndar til að frumvarpið verði samþykkt með þeim breytingum sem gerð er grein fyrir í nefndarálitinu og eru allar tæknilegar eins og áður sagði.

Undir álit meiri hluta nefndarinnar rita, auk þeirrar sem hér stendur, hv. þingmenn Steinunn Þóra Árnadóttir formaður, Óli Björn Kárason, Bryndís Haraldsdóttir, Ásmundur Friðriksson og Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir.