auðlindaákvæði í stjórnarskrá.
Virðulegur forseti. Ég tek bara hjartanlega undir orð hv. þingmanns um það að auðlindirnar eigi að vera í eigu þjóðarinnar og um það eigum við að fjalla í stjórnarskrá. Fyrrverandi forsætisráðherra steig það skref að móta slíkt ákvæði sem ég tel að hefði farið vel á að hefði fengið afgreiðslu hér í þinginu og ég held að það sé ekki útséð um það að slíkt ákvæði gæti klárast hér. Það er í raun og veru umhugsunarefni og bagalegt fyrir íslenska þingið að hafa ekki náð að klára þetta ákvæði og ekki síst vegna þess að ítrekað þá verðum við þess áskynja hversu mikilvægt það er að í grunnlögunum okkar, í stjórnarskránni okkar, sé kveðið upp úr með þetta með afgerandi og eindregnum hætti. Mín afstaða er raunar sú að ef gengið væri hér á milli fólks í samfélaginu þá væru ekki margir (Forseti hringir.) sem myndu mæla gegn því að íslenska þjóðin ætti að vera eigandi auðlindanna.