154. löggjafarþing — 106. fundur,  6. maí 2024.

stuðningur við nemendur af erlendum uppruna í skólakerfinu.

[15:44]
Horfa

mennta- og barnamálaráðherra (Ásmundur Einar Daðason) (F):

Virðulegi forseti. Ég vil þakka hv. þingmanni fyrir þessa fyrirspurn og vil byrja á því að segja hér í upphafi að það er áhyggjuefni að okkur skuli ekki vera að takast betur en raun ber vitni að taka utan um þennan fjölbreytta hóp af þessum nýju Íslendingum. Við verðum sannarlega að gera betur.

Heildarsýn ríkisstjórnarinnar í útlendingamálum, sem þingmaðurinn vitnar til, er gríðarlega mikilvægt skref í þessa veru. Í framhaldi af ákvörðun þeirrar heildarsýnar erum við þegar búin að setja mikinn kraft í þau verkefni sem að þessu lúta og erum náttúrlega búin að skapa undirstöðurnar undir þetta með nýrri Miðstöð menntunar- og skólaþjónustu sem tók til starfa 1. apríl. Við reiknum með því að á næstu vikum getum við sett af stað umfangsmikið verkefni sem miðar að því að stórauka þjónustu við skólakerfið þegar kemur að þessum hópi barna, bæði varðandi menntun, móttöku, menningu og heildarþjónustu við þennan hóp. Við reiknum með því að áherslur þessa verkefnis verði m.a. að setja af stað þróunarverkefni sem miði m.a. að því að nýta þá reynslu sem ekki hvað síst hefur skapast í Miðju máls og læsis, en líka víðar, til að auka stuðning og þjónustu varðandi íslensku sem annað mál, inngildingu og fjölmenningarlega menntun, læsisráðgjöf, stöðumat þegar kemur að nemendum með erlendan tungumála- og menningarbakgrunn og eflingu foreldrasamstarfs. Að geta bætt við varðandi menntun og starfsþróun kennara og starfsfólks er gríðarlega mikilvægt líka, ekki síst má nefna þróun og dreifingu námsgagna og annarra verkfæra, sem við höfum algerlega vanrækt á undanförnum áratug og áratugum. Við reiknum með því að samhliða nýju frumvarpi sem kemur inn í þingið í haust varðandi námsgögn að við getum aukið mjög verulega við námsgagnaútgáfu, með sérstakri áherslu á nemendur með erlendan tungumála- og menningarbakgrunn.